Íslandsbanki
Íslandsbanki
Íslandsbanki

Sérfræðingur í upplýsingaöryggi

Við leitum að sérfræðingi í upplýsingaöryggi sem mun starfa þétt með Öryggisstjóra Íslandsbanka og er staðsett á sviði áhættustýringar.

Íslandsbanki er að leita að metnaðarfullum og áhugasömum einstaklingi í framtíðarstarf til þess að vinna með Öryggisstjóra Íslandsbanka. Starfið felur í sér fjölbreytt verkefni sem snúa að öryggis- og gæðamálum, eftirliti með stöðu öryggismála og ráðgjöf vegna öryggismála.

Leitað er að aðila sem hefur ástríðu fyrir að einfalda flókna hluti, hefur góða samskiptahæfni og brennandi áhuga á öryggis- og gæðamálum.

Áhættustýring er svið innan Íslandsbanka sem stuðlar að upplýstri ákvarðanatöku og sterkri áhættuvitund stjórnar, stjórnenda og starfsmanna bankans. Öryggisstjóri Íslandsbanka starfar innan Áhættustýringar og hefur það hlutverk m.a. að hafa yfirsýn- yfir öryggismál bankans, öryggisþjálfun og skýrslugjöf til stjórnenda og stjórnar. Öryggisstjóri stuðlar að sterkri liðsheild, góðum samskiptum og framúrskarandi öryggismenningu.

Helstu verkefni og ábyrgð
  • Eftirlit með bestu framkvæmd öryggismála og hlítni bankans við ytri kröfur
  • Viðhald og yfirsýn tengd hlítingu laga er varða öryggismál
  • Umsýsla og eftirfylgni öryggisatvika
  • Úttektir og prófanir á virkni öryggisvarna, öryggisvöktunar og viðbrögðum við öryggistengdum atburðum
  • Viðhald á viðbúnaðarumgjörð bankans vegna rekstrarsamfellu
  • Þátttaka í öryggissamstarfi fjármálastofnana á Norðurlöndunum á vegum Nordic Financial CERT
  • Þróun mælaborða
Menntunar- og hæfniskröfur
  • Háskólamenntun og reynsla sem nýtist í starfi, t.d. stærðfræði, verkfræði eða tölvunarfræði
  • Frumkvæði, samskiptafærni, skipulagshæfni og sjálfstæð vinnubrögð
  • Greiningarhæfni og lausnamiðuð nálgun
  • Mjög góð íslensku- og enskukunnátta
Auglýsing stofnuð16. febrúar 2024
Umsóknarfrestur26. febrúar 2024
Tungumálahæfni
EnskaEnskaFramúrskarandi
ÍslenskaÍslenskaFramúrskarandi
Staðsetning
Hagasmári 3, 201 Kópavogur
Starfstegund
Hæfni
PathCreated with Sketch.ÁhættugreiningPathCreated with Sketch.Almenn tæknikunnáttaPathCreated with Sketch.JákvæðniPathCreated with Sketch.Mannleg samskiptiPathCreated with Sketch.MetnaðurPathCreated with Sketch.SamviskusemiPathCreated with Sketch.Sjálfstæð vinnubrögðPathCreated with Sketch.SkýrslurPathCreated with Sketch.TeymisvinnaPathCreated with Sketch.VandvirkniPathCreated with Sketch.Vinna undir álagiPathCreated with Sketch.ÞjónustulundPathCreated with Sketch.Þolinmæði
Starfsgreinar
Starfsmerkingar