Sérfræðingur í uppgjörum
Icelandair leitar að öflugum starfsmanni inn á fjármálasvið Icelandair með starfsstöð í Hafnarfirði.
Bókhaldsdeild Icelandair ber ábyrgð á bókhaldi, afstemmingum, skattskilum, skýrslugjöf til opinberra aðila, þjónustu við hin ýmsu svið félagsins, samskiptum við endurskoðendur, ásamt mánaðarlegum uppgjörum dótturfélaga og samstæðu félagsins.
Viðkomandi mun vinna með hópi sérfræðinga að fjölbreyttum verkefnum. Starfið hentar jákvæðum, verkefnadrifnum, þjónustulunduðum einstaklingi sem brennur fyrir bókhaldi og uppgjörum, er sjálfstæður og á auðvelt með að vinna í hóp.
Helstu verkefni og ábyrgð
- Aðstoð við uppgjör dótturfélaga og samstæðu
- Samskipti við innri viðskiptamenn
- Önnur tilfallandi verkefni
Menntunar- og hæfniskröfur
- Meistarapróf í reikningshaldi og endurskoðun
- Haldgóð reynsla af uppgjörum félaga og samstæðuuppgjörum
- Góð þekking á alþjóðlegum reikningsskilastöðlum æskileg
- Skipulögð og nákvæm vinnubrögð
- Frumkvæði og góðir samskiptahæfileikar
- Mjög gott vald á íslensku og ensku
Um er að ræða 100% starf. Æskilegt að viðkomandi geti hafið störf sem fyrst.
Stefna Icelandair er að stuðla að jafnrétti og fjölbreytileika á meðal starfsfólks og hvetur einstaklinga af öllum kynjum til að sækja um.
Umsóknir óskast ásamt ferilskrá og kynningarbréfi eigi síðar en 19. janúar 2025
Nánari upplýsingar veitir
María Sólbergsdóttir, Director, maria@icelandair.is
Icelandair rekur stefnu um sveigjanlegt vinnuumhverfi, þar sem starfsmönnum er gefið tækifæri á að vinna í fjarvinnu, frá skrifstofum okkar, eða bland af hvoru tveggja í samráði við næsta yfirmann. Búir þú úti á landi þá er æskilegt að þú sért í bænum fyrstu vikurnar meðan lært er á helstu kerfi og ferla.