

Sérfræðingur í stafrænni markaðssetningu
Sahara leitar að metnaðarfullum og sjálfstæðum sérfræðingi til að bætast í öflugt teymi okkar sem vinnur að fjölbreyttum verkefnum á innlendum og erlendum mörkuðum.
Við leitum að einstaklingi sem:
-
Sýnir frumkvæði í starfi
-
Hefur metnað til að ná framúrskarandi árangri
-
Er tilbúin/n að tileinka sér nýja þekkingu og færni
-
Getur unnið sjálfstætt að krefjandi verkefnum
- Vinnur vel í teymi
Ef þú telur þig hafa það sem þarf til að blómstra í þessu hlutverki, þá hvetjum við þig til að sækja um.
- Uppsetning og umsjón með stafrænum herferðum á miðlum á borð við Meta og Google.
- Uppsetning á birtingaráætlunum
- Textavinna
- Stefnumótun og ráðgjöf fyrir viðskiptavini
- Skýrslugerð & árangursmælingar
- Stjórnun viðskiptasambanda
-
Mjög góð þekking á samfélagsmiðlum og stafrænni markaðssetningu.
-
2+ ára reynsla af Meta Ads Manager skilyrði.
-
Reynsla af notkun Google Ads skilyrði.
-
Góð þekking á GA4.
-
Mjög gott vald á íslensku og ensku.
-
Sýna frumkvæði í öllum þáttum starfsins.
-
Greina tækifæri og leggja fram nýjar hugmyndir.
-
Hrinda verkefnum í framkvæmd með góðri tímastjórnun og sjálfstæðum vinnubrögðum.
Íslenska
Enska









