
Samgöngustofa
Samgöngustofa er stjórnsýslustofnun samgöngumála sem annast eftirlit með flugi, siglingum og umferð. Á hverjum degi erum við að læra hvert af öðru og sinna viðskiptavinum af kostgæfni með það að markmiði að verða betri og betri.

Sérfræðingur í skipadeild Samgöngustofu á Ísafirði
Samgöngustofa leitar að öflugum og lausnamiðuðum sérfræðingi til starfa í skipadeild á Ísafirði. Um er að ræða fjölbreytt starf á sviði öryggis og eftirlits í siglingum, þar sem fagmennska, nákvæmni og góð samskipti eru lykilatriði.
Skipadeild gegnir mikilvægu hlutverki við að tryggja öryggi skipa og starfsemi þeirra. Við leitum að einstaklingi sem hefur áhuga á að taka virkan þátt í því verkefni og vinna með reynslumiklu teymi sérfræðinga. Starfshlutfall er 100%.
Helstu verkefni og ábyrgð
- Útgáfa haffærisskírteina og annarra skipsskírteina í framhaldi af skoðun skipa.
- Útgáfa farþegaleyfa og annarra starfsleyfa fyrir starfsemi í siglingum.
- Þátttaka í eftirliti með skoðunarstofum skipa og flokkunarfélögum.
- Samskipti og ráðgjöf til viðskiptavina vegna leyfisveitinga og reglna.
- Þátttaka í þróun og umbótum á verkferlum innan vottaðs gæðakerfis skipadeildar.
- Aðkoma að uppfærslu skoðunarhandbóka og skoðunarskýrslna í samstarfi við aðra sérfræðinga.
Menntunar- og hæfniskröfur
- Menntun sem nýtist í starfi, svo sem skipstjórnar- eða vélstjórnarmenntun, eða sambærileg menntun/reynsla.
- Reynsla af sjómennsku eða rekstri skipa mikill kostur.
- Skipulögð og nákvæm vinnubrögð.
- Mjög góð samskipta- og samvinnuhæfni.
- Mjög góð íslensku- og enskukunnátta.
- Frumkvæði, sjálfstæði og áræðni í starfi.
- Góð almenn tölvukunnátta.
- Þekking á gæða- og öryggisstjórnarkerfum er kostur.
Við bjóðum fjölbreytt og krefjandi starf í sérhæfðu og faglegu umhverfi.
Auglýsing birt25. febrúar 2026
Umsóknarfrestur9. mars 2026
Tungumálahæfni
EnskaNauðsyn
ÍslenskaNauðsyn
Staðsetning
Hafnarstræti 1, 400 Ísafjörður
Starfstegund
Hæfni
ÁreiðanleikiMannleg samskiptiSamviskusemiSjálfstæð vinnubrögð
Vinnuumhverfi
Starfsgreinar
Starfsmerkingar
Fleiri störf (1)
Sambærileg störf (12)

Löglærður fulltrúi á Sauðárkróki
Sýslumaðurinn á Norðurlandi vestra

Yfirvélstjóri
Þörungaverksmiðjan hf. / Thorverk

Vélstjóri / Marine engineer
Björgun-Sement

Bifvélavirki fyrir Ford
Ford á Íslandi | Brimborg

Vélstjóri/keyrslumaður í fóðurframleiðslu
Fóðurblandan

Viðgerðarmaður á Selfossi
Steypustöðin

Sérfræðingur viðbragðsáætlana hjá sóttvarnalækni
Embætti landlækis

Sérfræðingur sýkingavarna hjá sóttvarnalækni
Embætti landlækis

Viðhaldsmaður í verksmiðju Siglufjörður
Primex ehf

Stjórnandi á svið Mannvirkja og markaðseftirlits
Húsnæðis- mannvirkja- og skipulagsstofnun (HMS)

Fulltrúi sveitarstjóra á Djúpavogi
Stjórnsýslusvið

Vélvirki/vélstjóri hjá Víking brugghús á Akureyri
Víking Brugghús CCEP á Íslandi