Heimar
Heimar
Heimar

Sérfræðingur í sjálfbærni

Við leitum að jákvæðum og lausnamiðuðum sérfræðingi í sjálfbærniteymi Heima. Ef þú brennur fyrir loftslagsmálum, samfélagsábyrgð og finnur leiðir til að gera hlutina umhverfisvænni þá gætir þú passað í hópinn okkar.

Helstu verkefni og ábyrgð
  • Gagnasöfnun í tengslum við umhverfisvottanir t.d. Breeam og Svaninn
  • Greiningar, skýrslugjöf og fræðsla um sjálfbærni
  • Aðstoð við lífsferilsgreiningar fasteigna (LCA)
  • Samskipti við erlenda aðila 
  • Þátttaka í verkefnahópum 
  • Þátttaka í verkefnum sem snúa að sjálfbærnivegferð Heima, m.a. samskipti við önnur svið og innleiðingu á sjálfbærni í kjarnastarfsemi félagsins. 
  • Ýmis önnur tilfallandi verkefni sem tengjast sjálfbærni
Menntunar- og hæfniskröfur
  • Menntun sem nýtist í starfi
  • Áhugi á sjálfbærnimálum 
  • Þekking og hæfni til að vinna eftir ferlum
  • Framúrskarandi samskiptahæfni
  • Sjálfstæð og nákvæm vinnubrögð og geta til að vinna í hóp
  • Gott vald á íslensku og ensku í töluðu og rituðu máli
Auglýsing birt6. júní 2025
Umsóknarfrestur15. júní 2025
Tungumálahæfni
EnskaEnska
Nauðsyn
Mjög góð
ÍslenskaÍslenska
Nauðsyn
Mjög góð
Staðsetning
Hagasmári 1, 201 Kópavogur
Starfstegund
Starfsgreinar
Starfsmerkingar