Þjóðminjasafn Íslands
Þjóðminjasafn Íslands
Þjóðminjasafn Íslands

Sérfræðingur í miðlun menningarsögu

Sérfræðingur í miðlun menningarsögu

Þjóðminjasafn Íslands auglýsir laust til umsóknar starf sérfræðings í miðlun menningarsögu. Leitað er eftir öflugum einstaklingi sem hefur brennandi áhuga á menningarsögu, miðlun, ritstjórn og textavinnu.

Í boði er nýtt og áhugavert starf á kjarnasviði safneignar þar sem hópur sérfræðinga vinnur að faglegu safnastarfi og þjóðminjavörslu, þ.e. söfnun, skráningu, varðveislu, rannsóknum og miðlun safneignar (myndir, munir, þjóðhættir og hús). Aðalstarfsstöð viðkomandi starfsmanns er á Tjarnarvöllum 11 í Hafnarfirði.

Menntunar- og hæfniskröfur
Háskólapróf (BA/BS) sem nýtist í starfi
Reynsla af textavinnu nauðsynleg
Reynsla af safnastarfi æskileg
Mjög góð færni í íslensku og ensku, jafnt töluðu sem rituðu máli
Góð almenn tölvufærni
Skipulagshæfni, lipurð í mannlegum samskiptum og jákvætt viðmót
Frumkvæði, nákvæmni og metnaður í starfi
Helstu verkefni og ábyrgð
Þátttaka í gerð grunn- og sérsýninga og ritun sýningatexta
Umsjón með og/eða ritun texta í útgáfum á vegum safnsins
Ritun texta fyrir stafræna miðlun
Önnur verkefni tengd miðlun safnkostsins
Önnur textavinnsla t.d. vegna styrkumsókna
Þátttaka í öðrum verkefnum kjarnasviðs safneignar
Auglýsing birt24. september 2021
Umsóknarfrestur22. október 2021
Tungumálahæfni
Engar sérstakar tungumálakröfur
Staðsetning
Tjarnarvellir 11, 221 Hafnarfjörður
Starfstegund
Starfsgreinar
Starfsmerkingar