Sýslumaðurinn á höfuðborgarsvæðinu
Sýslumaðurinn á höfuðborgarsvæðinu
Sýslumaðurinn á höfuðborgarsvæðinu

Sérfræðingur í málefnum barna

Við teymi sérfræðinga hjá Sýslumanninum á höfuðborgarsvæðinu vantar tvo sérfræðinga til starfa. Annars vegar staða þroskaþjálfa með sérþekkingu á þjónustu við fatlað fólk (Tímabundin ráðning á Akureyri) og hins vegar staða sérfræðings í málefnum barna samkvæmt barnalögum.

Verkefni sérfræðings í málefnum barna er að veita sáttameðferð til aðstoðar við lausn ágreiningsmála vegna barna, veita ráðgjöf, liðsinni og álit m.a. vegna umgengni, forsjár eða búsetu barna, eiga viðtöl við börn, hafa eftirlit með umgengni og veita ráðgjöf vegna ættleiðinga. Teymi sáttamanna og sérfræðinga í málefnum barna er starfar hjá Sýslumanninum á höfuðborgarsvæðinu veitir þjónustu við öll sýslumannsembætti og sinna verkefnum á landsvísu á grundvelli barnalaga nr. 76/2003.

Helstu verkefni og ábyrgð
  • Veita þjónustu við öll sýslumannsembætti á landsvísu er varðar mál skv. barnalögum. 
  • Aðstoða foreldra við úrlausn ágreiningsmála, veita ráðgjöf og liðsinni.
  • Álit og mat, m.a. á því hvaða umgengni er barni fyrir bestu.  
  • Sáttameðferð vegna ágreinings varðandi m.a. umgengni, forsjá eða búsetu barna.
  • Sérfræðiráðgjöf vegna málefna barna.
  • Viðtöl við aðila máls, foreldra og börn. 
  • Skýrslur og rökstuddar greinargerðir um ágreiningsmál er varða börn.
  • Eftirlit með umgengni.
  • Ráðgjöf vegna ættleiðinga.
  • Teymisvinna sérfræðinga og löglærðra fulltrúa í málum skv. barnalögum. 
Menntunar- og hæfniskröfur
  • Háskólapróf til starfsréttinda í sálfræði, félagsráðgjöf eða sambærilegum greinum.
  • Menntun á sviði sáttameðferðar eða sáttamiðlunar eða umtalsverð starfsreynsla á því sviði eða fjölskyldumeðferðar.
  • Mikil hæfni í mannlegum samskiptum og geta til að vinna undir álagi.
  • Að hafa unnið að lágmarki í tvö ár við meðferð mála þar sem reynir beint á hagsmuni barna og/eða foreldra.
  • Að hafa haldgóða þekkingu á ákvæðum barnalaga og þeim helstu álitaefnum sem reynir á við túlkun þeirra.
  • Færni til að geta unnið sjálfstætt sem og í hópi með skipulögðum og öguðum vinnubrögðum.
  • Færni í mæltu og rituðu máli á íslensku og ensku.
Auglýsing birt7. mars 2025
Umsóknarfrestur28. mars 2025
Tungumálahæfni
ÍslenskaÍslenska
Nauðsyn
Framúrskarandi
EnskaEnska
Nauðsyn
Mjög góð
Staðsetning
Hlíðasmári 1, 201 Kópavogur
Starfstegund
Vinnuumhverfi
Starfsgreinar
Starfsmerkingar