Hafnarfjarðarbær
Hafnarfjarðarbær
Hafnarfjarðarbær

Sérfræðingur í launadeild - Tímabundið starf í 1 ár

Hafnarfjarðarbær leitar að öflugum sérfræðingi til starfa í launadeild Hafnarfjarðarbæjar í tímabundna afleysingu í eitt ár. Launadeild tilheyrir fjármálasviði og er næsti yfirmaður deildarstjóri launadeildar. Í launadeild starfa fimm starfsmenn auk deildarstjóra.

Helstu verkefni og ábyrgð:

  • Almenn launavinnsla og skráningar í launa- og mannauðskerfi sveitarfélagsins
  • Rýni og frágangur á gögnum tengdum launavinnslu
  • Umbótastarf og þróunarvinna í Kjarna og Vinnustund
  • Leiðbeiningar og ráðgjöf til stjórnenda varðandi launa- og kjaramál
  • Gerð ráðningarsamninga í samráði við deildarstjóra
  • Undirbúningur og vinna við launaáætlun sveitarfélagsins
  • Aðkoma að skýrslugerð fyrir stjórnendur tengt launa- og kjaramálum
  • Samskipti við stéttarfélög og lífeyrissjóði s.s. varðandi iðgjaldaskil og skilagreinar
  • Gerð leiðbeininga og fræðsluefnis tengt launamálum
  • Önnur verkefni samkvæmt stafslýsingu og sem yfirmaður felur starfsmanni

Menntunar- og hæfniskröfur:

  • Háskólamenntun (B.A/B.S) á sviði viðskiptafræði eða sambærilegu námi sem nýtist í starfi
  • Reynsla af sambærilegu starfi æskileg s.s. launamálum og launavinnslu
  • Þekking og reynsla af launakerfum, tímaskráningarkerfum og bakvinnslu
  • Þekking á launakerfinu Kjarna æskileg
  • Sjálfstæði og skipulagshæfni
  • Þjónustulund, góð framkoma og jákvætt viðmót
  • Góð íslensku- og enskukunnátta
  • Nákvæmni í vinnubrögðum og töluglögg(ur)
  • Geta til að vinna undir álagi

Nánari upplýsingar um starfið veitir Hildur Sigþórsdóttir deildarstjóri launadeildar, hildursigthors@hafnarfjordur.is

Laun eru samkvæmt kjarasamningi Sambands íslenskra sveitarfélaga við Visku.

Umsóknarfrestur er til og með 8. desember 2024.

Greinargóð ferilskrá og kynningarbréf fylgi umsókn.

Umsóknir eru gildar í 6 mánuði frá því að umsóknarfrestur rennur út.

Vakin er athygli á stefnu Hafnarfjarðarbæjar að jafna hlutfall kynjanna í störfum hjá bænum og að vinnustaðir bæjarins endurspegli fjölbreytileika samfélagsins.

Auglýsing birt28. nóvember 2024
Umsóknarfrestur8. desember 2024
Tungumálahæfni
ÍslenskaÍslenska
Nauðsyn
Meðalhæfni
Staðsetning
Strandgata 6, 220 Hafnarfjörður
Starfstegund
Starfsgreinar
Starfsmerkingar