

Sérfræðingur í fjárhagsáætlunum og greiningum
Vegagerðin er stærsta framkvæmdastofnun landsins og sinnir fjölbreyttum verkefnum sem tengjast viðhaldi og rekstri samgöngukerfisins. Fjármáladeild er m.a. ábyrg fyrir upplýsingagjöf um fjárhag og rekstur Vegagerðarinnar og gerð fjárhagsáætlana í samræmi við áherslur hverju sinni. Á fjármáladeild starfa 14 starfsmenn, þar af 5 í teymi fjárhagsáætlana og greininga.
Vegagerðin óskar eftir öflugum og leiðandi sérfræðingi sem fer fyrir teymi fjárhagsáætlana og greininga. Í starfinu felst þróun og rekstur verkefna sem varða fjármál Vegagerðarinnar, ábyrgð á áætlanagerð, reglubundin eftirfylgni og ítarlegar greiningar á fjárveitingum til sviða, deilda og svæða. Einnig felst í starfinu framsetning upplýsinga og kynning á fjárhagsstöðu til stjórnenda.
- Stýring og eftirfylgni með fjárhagsáætlunum sviða, deilda og verkefna, ásamt ráðgjöf til stjórnenda
- Greiningar á fjárhag og rekstri til að styðja við ákvarðanatöku innan Vegagerðarinnar
- Fjárhagslegt eftirlit og frávikagreiningar
- Þátttaka í þróun á fjárhagsvöruhúsi og mælaborðum
- Framsetning fjárhagsupplýsinga til stjórnenda og hagaðila
- Þróa verkferla sem snúa að fjárhagi og fjárhagsáætlunargerð, í samráði við forstöðumann fjármáladeildar
- Háskólapróf í viðskiptafræði, fjármálum, hagfræði eða annað sambærilegt próf sem nýtist í starfi. Framhaldsnám sem nýtist í starfi æskilegt.
- Hæfni til að miðla tölulegum upplýsingum með greinargóðum og skýrum hætti
- Mjög góð tölvukunnátta er skilyrði
- Reynsla af greiningarvinnu á sviði fjármála og rekstrar
- Reynsla af viðskiptagreind
- Leiðtogahæfileikar og mjög góð hæfni í mannlegum samskiptum
- Frumkvæði, sjálfstæði og metnaður til að ná árangri í starfi
- Hæfni til ákvarðanatöku og eftirfylgni
- Góð íslensku- og enskukunnátta í rituðu og töluðu máli
Íslenska
Enska










