SÉRFRÆÐINGUR - BÓKHALDSÞJÓNUSTA
Við leitum að drífandi og metnaðarfullum sérfræðingi á fjármálasvið Fjársýslunnar. Um er að ræða kjörið tækifæri fyrir einstakling sem vill takast á við faglegar áskoranir, mótun verkferla og spennandi framtíðarstarf í síkviku umhverfi Fjársýslunnar. Við bjóðum upp á krefjandi verkefni í skemmtilegu verkefnamiðuðu vinnuumhverfi í nýju húsnæði, þar sem lögð er áhersla á teymisvinnu og þekkingarmiðlun starfsfólks. Gert er ráð fyrir starfstöð í Reykjavík en möguleiki er á starfi án staðsetningar.
Fjársýslan er þjónustu- og þekkingarstofnun sem veitir fjölbreytta þjónustu á sviði fjármála og mannauðsmála ríkisins. Á fjármálasviði starfar öflugur hópur sérfræðinga við þjónustu og ráðgjöf í bókhaldið og uppgjöri fyrir ríkið. Unnið er markvisst að stafrænni vegferð og framþróun í verklagi. Áhersla er á að veita ríkisaðilum framúrskarandi þjónustu.
·
- Umsjón og eftirlit með bókhaldi aðila í þjónustu
- Afstemmingar og uppgjör
- Samræming bókhalds ríkisaðila
- Framþróun verklags með ferlagreiningu og stafrænni nálgun
- Leiðbeiningar og þjónusta við opinber hlutafélög
- Skil á gögnum og upplýsingagjöf til opinberra aðila
- Fræðsla, ráðgjöf og upplýsingagjöf
- Háskólagráða sem nýtist í starfi og/eða nám til viðurkenningar bókara
- Umfangsmikil reynsla af bókhaldsvinnu er skilyrði
- Góð kunnátta á Excel er skilyrði
- Gott vald á íslensku og ensku er skilyrði
- Reynsla af verkefnastjórnun og gerð og þróun verkferla
- Rík þjónustulund og geta til að forgangsraða verkefnum á álagstímum
- Sjálfstæð og lausnamiðuð vinnubrögð
- Frumkvæði, drifkraftur, jákvæðni og góð samskiptafærni