

Sérfræðingur á fjármálasviði
Bláa Lónið hf. leitar að öflugum starfsmanni í teymi fjárreiðu á fjármálasviði félagsins. Um er að ræða tímabundið starf vegna fæðingarorlofs og þarf viðkomandi að geta hafið störf fljótlega á nýju ári. Afleysingin miðast við árið 2026 með möguleika á fastráðningu.
Starfið er fjölbreytt og snertir verkþætti þvert á hlutverk innan teymisins sem sér um tekjubókhald allra félaga innan samstæðunnar. Starfið felur m.a. í sér bókun sölureikninga, afstemmingar og söluppgjör í miklum samskiptum og samvinnu við aðrar deildir innan fyrirtækisins.
Menntunar- og hæfniskröfur:
- Viðkomandi skal vera viðurkenndur bókari og/eða hafa reynslu af bókhaldsstörfum.
- Góð þekking á notkun Business Central er mikill kostur.
- Góð almenn tölvukunnátta.
- Nákvæm og vönduð vinnubrögð.
- Frumkvæði og sjálfstæði í vinnubrögðum.
- Þjónustulund og lipurð í mannlegum samskiptum.
- Góð íslensku- og enskukunnátta í töluðu og rituðu máli.
Umsóknarfrestur er til og með 15. desember 2025.
Nánari upplýsingar um starfið veita mannauðssérfræðingar Bláa Lónsins í síma 420-8800.
Bláa Lónið er lifandi og skemmtilegur vinnustaður þar sem áhersla er lögð á sífellda þróun og nýsköpun. Í boði er starf á vinnustað sem býður upp á fjölbreyttar og krefjandi áskoranir. Einnig eru ýmis fríðindi í boði, eins og heilsuræktarstyrkur, þátttaka í einu öflugasta starfsmannafélagi landsins og fleira.
Viðkomandi mun hafa starfsstöð í Urriðaholti í Garðabæ.
Enska
Íslenska










