
Wolt
Wolt er hugbúnaðarfyrirtæki frá Finnlandi, og er aðallega þekkt fyrir heimsendingaappið okkar, sem tengir viðskiptavini, fyrirtæki og sendla í leit að leiðum til að þéna tekjur á sveigjanlegan hátt. Árið 2015 byrjuðum við með sendingar frá veitingastöðum en bættum svo við matvöru, gjafavöru og öðrum vörum. Nú getur fólk í hundruðum borga í 25 löndum fengið allt sem þau þarfnast, heimsent snögglega og áreiðanlega upp að dyrum. Við leggjum okkur fram við að koma vel fram við alla, með það að leiðarljósi að gera allar borgir sem við störfum í, að betri stað.
Senior Key Account Manager
Sem Senior Key Account Manager berð þú ábyrgð á eignasafni 50–70 veitingastaða og verslana. Við leitum að einstaklingi sem hefur áhuga á að byggja upp gagnkvæm og árangursrík tengsl við samstarfsaðila Wolt.
Þú munt tryggja að samstarfsaðilar okkar vaxi og dafni með því að greina vaxtartækifæri og veita þeim þau tæki og þann stuðning sem þarf.
Þessi staða ber ábyrgð á stórum hluta tekna Wolt á Íslandi.
Helstu verkefni og ábyrgð
- Byggja upp sterk og markviss tengsl við veitingastaði og verslanir um allt land.
- Leiða samningaviðræður og kynna nýjar vörur og þjónustu s.s. Wolt+ og Wolt Drive, til að hámarka arðsemi samstarfsaðila.
- Veita ráðgjöf, framkvæma gæðaúttektir og bjóða upp á skapandi lausnir til að aðstoða samstarfsaðila við að ná markmiðum sínum.
- Meta reglulega árangur samstarfsaðila, forgangsraða aðgerðum og nýta nýjustu strauma og greiningartól eins og Looker til að styðja við vöxt þeirra.
- Keyra tekjuvöxt með gagnadrifinni nálgun, bæði fyrir samstarfsaðila og Wolt.
Menntunar- og hæfniskröfur
- Reynsla af viðskiptastjórnun eða sambærilegum störfum er skilyrði
- Menntun: Háskólagráða sem nýtist í starfi er skilyrði.
- Hæfni til að greina árangursmælikvarða og gögn til að bæta tengsl og afkomu samstarfsaðila.
- Tungumál: Fullkomin færni í íslensku og ensku.
- Tæknikunnátta: Þekking á CRM kerfum og greiningartólum (s.s. Looker eða Power BI) er kostur.
Fríðindi í starfi
Við bjóðum upp á fyrsta flokks starfsaðstöðu á nýrri skrifstofu okkar í Ármúla auk þess sem starfsmenn njóta sérkjara á hjá veitingastöðum Wolt.
Einnig eru regluleg ferðalög, svo sem ráðstefnur og fundir sem viðkomandi hefur möguleika á að sækja í öðrum löndum þar sem Wolt er með starfsstöðvar.
Auglýsing birt12. júní 2025
Umsóknarfrestur24. júlí 2025
Tungumálahæfni

Nauðsyn

Nauðsyn
Staðsetning
Ármúli 13, 108 Reykjavík
Starfstegund
Starfsgreinar
Starfsmerkingar
Sambærileg störf (12)

Forstöðumaður sölu og þjónustu
Dineout ehf.

Starfsfólk í verslun - Kauptún - fullt starf
ILVA ehf

Starfsfólk í verslun í Kauptúni - helgar/hlutastarf
ILVA ehf

Þjónustufulltrúi
Ekran

Hlutastarf - söluráðgjafi
Húrra Reykjavík

Photography Gallery - Sales Consultant
Iurie I Fine Art

Sölufulltrúi / Business Development Manager
Teya Iceland

Tímabundið starf í verslun á Selfossi
Þór hf.

A4 Skeifan – Skemmtilegasta vinnan!
A4

Sölu- og þjónustufulltrúi AVIS
Avis og Budget

Sala & Umsjón í Norðurlöndunum
Luxury Adventures

Reykjavík - Sölufulltrúi, 25 ára og eldri
Papco