
Markend ehf.
Markend er stafræn markaðsstofa sem leggur megináherslu á stafrænar herferðir drifnar af árangri og mælanlegum niðurstöðum.

Samfélagsmiðlafulltrúi
Við erum að leita af hæfileikaríkum og hugmyndaríkum samfélagsmiðlafulltrúa. Ert þú framúrskarandi í textasmíði, hefur gott auga uppsetningu efnis á samfélagsmiðlum og reynslu af ljósmyndun?
Viðkomandi þarf að búa yfir færni í mannlegum samskiptum, sýna frumkvæði í starfi, vera skipulagður og geta unnið sjálfstætt.
Menntunar- og hæfniskröfur
Æskilegt að hafa menntun sem nýtist í starfi.
Æskilegt að hafa reynslu sem nýtist í starfi.
Reynsla og þekking í heimi stafrænna auglýsinga er æskileg.
Reynsla af textasmíði og efnissköpun er æskileg.
Góð tök á umsýslu samfélagsmiðla, póstun, stillingum o.fl.
Mjög góð íslensku- og enskukunnátta bæði í riti og máli er skilyrði
Grunnkunnátta á Excel
Kunnátta í ljósmyndum og eftirvinnslu
Helstu verkefni og ábyrgð
Utanumhald samfélagsmiðla og gerð birtingaráætlana.
Hugmyndavinna & efnissköpun.
Textasmíði fyrir stafrænt efni t.d. samfélagsmiðla, stafrænar auglýsingar og markpósta
Tilfallandi ljósmyndaverkefni
Samskipti við viðskiptavini og áætlanagerð.
Lesa úr, vinna með og þróa aðferðarfræði út frá niðurstöðum og gögnum.
Auglýsing birt25. janúar 2023
Umsóknarfrestur9. febrúar 2023
Tungumálahæfni
Engar sérstakar tungumálakröfur
Staðsetning
Suðurlandsbraut 4A, 108 Reykjavík
Starfstegund
Hæfni
ÁætlanagerðFacebookFrumkvæðiGoogleInstagramLjósmyndunMicrosoft ExcelSamviskusemiSjálfstæð vinnubrögðTextagerð
Starfsgreinar
Starfsmerkingar
Sambærileg störf (6)





