Heilbrigðisstofnun Suðurlands
Heilbrigðisstofnun Suðurlands
Heilbrigðisstofnun Suðurlands

Sálfræðingur óskast til starfa á HSU

Heilbrigðisstofnun Suðurlands óskar eftir að ráða sálfræðing til starfa.

Starfshlutfall er fullt en annað kemur til greina, megin starfsstöð er á Selfossi. Um er að ræða afleysingarstöðu til eins árs vegna fæðingarorlofs með möguleika á ráðningu til lengri tíma.

Sálfræðiteymi HSU er þverfaglegt og sinnir fjölbreyttri þjónustu í bæði barna- og fullorðinsteymi. Teymið tekur virkan þátt í þróunarverkefnum bæði í fullorðins- og barnaþjónustu þar sem góð tækifæri eru til starfsþróunar og handleiðslu.

Ráðið verður í starfið frá 15. maí n.k. eða eftir nánara samkomulagi.

Helstu verkefni og ábyrgð
  • Sálfræðiteymi HSU veitir þjónustu bæði í barna- og fullorðinsteymi. Sérstaklega er óskað eftir sálfræðingi í barnateymi en staða í fullorðinsteymi kemur einnig til greina.  

  • Helstu verkefni eru greining á geðvanda, sálfræðimeðferð og ráðgjöf við vægum til miðlungs klínískum vanda. Sálfræðiteymi HSU er þátttakandi í þróunarverkefnum á borð við Flikk (Hjálp fyrir kvíðin börn) og ÞÁS (þrepaskipt, árangursmæld sálfræðiþjónusta) sem gefur tækifæri á ríkri þjálfun, endurmenntun og handleiðslu sérfræðinga.  

  •  Þátttaka í fjölbreyttri teymisvinnu innan og utan stofnunar.  

Menntunar- og hæfniskröfur
  • Starfsleyfi landlæknis  

  • Framúrskarandi hæfni í mannlegum samskiptum  

  • Frumkvæði og sjálfstæð vinnubrögð  

  • Æskilegt að viðkomandi hafi reynslu af sálfræðigreiningum og meðferð.  

  • Mjög góð íslenskukunátta er skilyrði 

Auglýsing birt17. apríl 2026
Umsóknarfrestur27. apríl 2026
Tungumálahæfni
ÍslenskaÍslenska
Nauðsyn
Framúrskarandi
EnskaEnska
Nauðsyn
Meðalhæfni
Staðsetning
Árvegur 161836, 800 Selfoss
Starfstegund
Starfsgreinar
Starfsmerkingar