

Sálfræðingur - Geðheilsumiðstöð barna HH
Hefur þú áhuga á að taka þátt í starfi með börnum og unglingum með geð- og þroskavanda?
Heilsugæsla höfuðborgarsvæðisins leitar að sálfræðingi til starfa í greiningarteymi Geðheilsumiðstöðvar barna. Teymið sinnir nánari greiningu barna og unglinga að 18 ára aldri ef sterkar vísbendingar eru um ADHD eða skyldar raskanir, svo sem tilfinningavanda, hegðunarerfiðleika, samskiptavanda eða hamlandi einkenni einhverfurófs.
Geðheilsumiðstöð barna (GMB) veitir 2. stigs heilbrigðisþjónustu á landsvísu fyrir fjölskyldur með börn frá meðgöngu að 18 ára aldri. Miðstöðin sinnir greiningu, ráðgjöf og meðferð vegna geð- og þroskavanda barna og unglinga ásamt því að styðja við tengslamyndun foreldra og barna frá 0-5 ára. Starfshópur GMB er þverfaglegur og vinnur eftir markvissu skipulagi með fagleg gæði að leiðarljósi. Áhersla er á gott viðmót og fjölskyldumiðaða þjónustu. GMB á reglulegt samstarf við þjónustuveitendur víðsvegar um landið og sinnir starfsþjálfun háskólanema á sviðinu.
Um er að ræða 100% ótímabundið starf og æskilegt er að viðkomandi geti hafið störf 1. maí n.k. eða eftir nánara samkomulagi. Til greina kemur að ráða tímabundið áhugasaman reynsluminni sálfræðing í annað starf fáist ekki sálfræðingur með reynslu í starfið.
Sálfræðingur starfar í þverfaglegu teymi við greiningu, ráðgjöf og meðferð barna með geð- eða þroskavanda. Sálfræðingur tekur virkan þátt í umbótastarfi og þróun þjónustu. Sálfræðingur leggur fyrir ýmis sérhæfð greiningarviðtöl og sálfræðileg próf.
- Starfsleyfi frá Embætti landlæknis sem sálfræðingur
- A.m.k. 5 ára starfsreynsla af klínísku starfi er æskileg
- Reynsla af þverfaglegri teymisvinnu við greiningu á geð- og þroskavanda hjá börnum
- Reynsla af notkun helstu greiningartækja fyrir börn og ungmenni
- Sérhæfing á sviði þroska-, geð- og hegðunarvanda hjá börnum æskileg
- Þekking og reynsla af einhverfu greiningum æskileg
- Faglegur metnaður, sjálfstæði í starfi, frumkvæði og öguð vinnubrögð
- Góð hæfni í mannlegum samskiptum og áhugi og vilji til að starfa í þverfaglegu teymi
- Góð íslenskukunnátta
- Almenn enskukunnátta
- Góð almenn tölvuþekking (word, excel, powerpoint, outlook)
- Heilsustyrkur
- samgöngustyrkur
























