Heilsugæsla Höfuðborgarsvæðisins
Heilsugæsla Höfuðborgarsvæðisins
Heilsugæsla Höfuðborgarsvæðisins

Sálfræðingur barna og unglinga - Heilsugæslan Árbæ

Við hjá heilsugæslunni Árbæ leitum að jákvæðum og metnaðarfullum sálfræðingi til að koma til liðs við okkur . Um er að ræða 70 - 100% tímabundið starf og æskilegt að viðkomandi geti hafið störf sem fyrsti eða eftir nánara samkomulagi.

Á Heilsugæslunni starfar sérhæft og metnaðarfullt starfsfólk í hvetjandi og áhugaverðu starfsumhverfi þar sem frumkvæði og sjálfstæði fær að njóta sín. Hjá okkur ríkir góður starfsandi og áhersla er lögð á náið samstarf fagstétta og teymisvinnu.

Um er að ræða ábyrgðarmikið og krefjandi starf á spennandi vettvang, fyrir sálfræðing sem hefur áhuga á að taka þátt í framþróun í geðheilsumálum innan heilsugæslu og vill stuðla að heilbrigði líðan einstaklinga. Lögð er áhersla á að sálfræðingar HH fái handleiðslu og símenntun í faginu. Til greina getur komið að ráða tímabundið áhugasaman reynsluminni sálfræðing í ábyrgðarminna starf fáist ekki sálfræðingur með reynslu í starfið.

Heilsugæslunni er ætlað að veita íbúum almenna, samfellda og aðgengilega heilbrigðisþjónustu. Starfsemi heilsugæslunnar er í örri framþróun þar sem áhersla er lögð á náið samstarf fagstétta og teymisvinnu.


Nánari upplýsingar um starfsemi stöðvarinnar má finna á vef Heilsugæslunnar (www.heilsugaeslan.is).

Helstu verkefni og ábyrgð
  • Sálfræðiþjónusta fyrir börn og unglinga að 18 ára aldri
  • Mat og greining á vanda barna og unglinga
  • Meðferð á geðrænum vanda, gagnreynd sálfræðimeðferð og ráðgjöf 
  • Einstaklings- og hópmeðferðir
  • Námskeiðahald, ráðgjöf og fræðsla
  •  Handleiðsla og þjálfun nema í klínískri sálfræði æskileg
  • Virk þátttaka í þverfaglegri teymisvinnu
  • Þátttaka í þróun og uppbyggingu sálfræðiþjónustu í heilsugæslu
  • Samstarf við aðrar heilbrigðisstofnanir s.s. Landspítala og félagsþjónustu
  • Önnur tilfallandi verkefni eftir þörfum
Menntunar- og hæfniskröfur
  • Leyfi frá landlækni til að starfa sem sálfræðingur er skilyrði
  • A.m.k 3 ára starfsreynsla af klínísku starfi er æskileg
  • Reynsla af greiningu og meðferð barna og unglinga
  • Þekking og reynsla af gagnreyndum sálfræðiaðferðum
  • Faglegur metnaður og áhugi á uppbyggingu sálfræðiþjónustu í heilsugæslu
  • Sjálfstæði, frumkvæði og lausnamiðuð nálgun í starfi
  • Góð færni og áhugi á þverfaglegri teymisvinnu
  • Góð samskiptahæfni, lipurð og sveigjanleiki í samskiptum
  • Góð íslenskukunnátta skilyrði
  • Góð almenn tölvukunnátt
Fríðindi í starfi
  • Heilsustyrkur
  • Samgöngustyrkur
Auglýsing birt7. mars 2025
Umsóknarfrestur21. mars 2025
Tungumálahæfni
ÍslenskaÍslenska
Nauðsyn
Framúrskarandi
EnskaEnska
Nauðsyn
Meðalhæfni
Staðsetning
Hraunbær 115, 110 Reykjavík
Starfstegund
Hæfni
PathCreated with Sketch.JákvæðniPathCreated with Sketch.Mannleg samskiptiPathCreated with Sketch.Sjálfstæð vinnubrögð
Starfsgreinar
Starfsmerkingar