Sala & Kynningar
Við auglýsum eftir jákvæðum og ófeimnum einstaklingi með reynslu af þjónustu og sölustarfi.
Um er að ræða 50% starf (3 dagar í viku) þar sem viðkomandi þarf að geta afgreitt í verslun, spjallað við fólk, tekið saman netpantanir og heildsölupantanir. Verið með kynningar fyrir vörumerkin okkar, bæði hjá okkur og í öðrum verslunum.
Viðkomandi þarf að hafa reynslu af sölustarfi, með mikla þjónustulund og hafa mikinn áhuga á snyrtivörum. Það er kostur ef viðkomandi er förðunarfræðingur og/eða snyrtifræðingur en ekki nauðsynlegt. Við erum með sérsmíðað netverslunarkerfi og notumst við DK birgðakerfi.
Við förum fram á að viðkomandi sér reyklaus og með hreint sakarvottorð. Kynningarbréf verður að fylgja umsókn ásamt meðmælum.
24 ára aldurstakmark
Sala í verslun
Kynningar í verslun
Vöruáfyllingar
Sjá um netpantanir
Sjá um heildsölupantanir
Farðanir (ef förðunarfræðingur)
Setja inn efni á samfélagsmiðla
Halda verslun og lager snyrtilegum
Förðunarfræði eða Snyrtifræði æskilegt en ekki nauðsynlegt
Frammistöðu inneignir
Förðunarverkefni ef förðunarfræðingur