Hafnarfjarðarbær
Hafnarfjarðarbær
Hafnarfjarðarbær

Safnstjóri skólasafns – Skarðshlíðarskóli

Skarðshlíðarskóli óskar eftir drífandi og kraftmiklum safnstjóra í 80 - 90% starf.

Gildi skólans eru samvinna, vinátta og þrautseigja. Í Skarðshlíðarskóla eru áhugasamir og skemmtilegir nemendur, metnaðarfullt starfsfólk og öflugur foreldrahópur. Við leggjum áherslu á góðan starfsanda, teymiskennslu, fjölbreytta kennsluhætti, SMT skólafærni og að allir nemendur nái góðum árangri í leik og starfi. Mílan er órjúfanlegur hluti af skólastarfinu en í því felst að nemendur og starfsfólk fer út daglega og gengur, skokkar eða hleypur í 15 mínútur.

Innleiðing á UDL (Universal Design for Learning) hófst haustið 2020. UDL veitir nemendum möguleika á að læra á ólíka vegu og að sýna kunnáttu sína á ólíka hátt. Nemendur eru virkir og hafa áhrif á eigið nám.

Skarðshlíðarskóli er heildstæður grunnskóli með nemendur í 1. til 10.bekk. Í vetur eru um 470 nemendur í skólanum. Skólahúsnæðið er glæsilegt og er skólinn vel tækjum búinn, með íþróttahús, útibú frá Tónlistarskóla Hafnarfjarðar og fjögurra deilda leikskóli í samtengdu skólahúsnæði.

Helstu verkefni og ábyrgð:

  • Halda utan um starfsemi bókasafnsins
  • Annast innkaup á nýjum bókum/safnkosti
  • Skrá og flokka bókakost safnsins
  • Aðstoða nemendur við upplýsingaöflun og bókaval
  • Starfa náið með starfsfólki og veita þeim ráðgjöf
  • Fræðsla um bókasafns- og upplýsingalæsi
  • Þátttaka í lestrarhvetjandi verkefnum
  • Þátttaka í þróunarverkefnum skólans
  • Önnur verkefni samkvæmt starfslýsingu og sem yfirmaður felur starfsmanni

Menntunar- og hæfniskröfur:

  • M.A próf í upplýsingafræði eða B.A próf í upplýsingafræði og mikil starfsreynsla á sérsviðinu.
  • Þekking á Ölmu bókasafnskerfi kostur
  • Reynsla og þekking af stöfum á bókasafni æskileg
  • Nákvæmni í vinnubrögðum
  • Brennandi áhugi á starfi með börnum og ungmennum
  • Hæfni til að tjá sig í ræðu og riti á íslensku og ensku
  • Góð samstarfs- og samskiptahæfileikar
  • Geta til að aðlagast breyttum aðstæðum
  • Frumkvæði og skipulagshæfileikar
  • Mjög góð tölvukunnátta

Viðkomandi þarf að geta hafið störf sem fyrst.

Skilyrði við ráðningu er að viðkomandi hafi hreint sakavottorð.

Nánari upplýsingar gefur Ingibjörg Magnúsdóttir, skólastjóri, í síma 6645871 eða í tölvupósti [email protected]s

Umsóknarfrestur er til og með 20. febrúar 2025.

Greinagóð ferilsskrá fylgi umsókn.

Launakjör eru samkvæmt kjarasamningi Sambands íslenskra sveitarfélaga og BHM.

Vakin er athygli á stefnu Hafnarfjarðarbæjar að jafna hlutfall kynjanna í störfum hjá bænum og að vinnustaðir bæjarins endurspegli fjölbreytileika samfélagins.

Auglýsing birt6. febrúar 2025
Umsóknarfrestur20. febrúar 2025
Tungumálahæfni
ÍslenskaÍslenska
Nauðsyn
Mjög góð
Staðsetning
Hádegisskarð 1, 221 Hafnarfjörður
Starfstegund
Starfsgreinar
Starfsmerkingar