EFLA
EFLA

Reynslumikill sérfræðingur í mannauðsmálum

EFLA óskar eftir að ráða öflugan einstakling sem brennur fyrir mannauðsmálum í spennandi starf sérfræðings í mannauðsmálum. Viðkomandi mun sinna fjölbreyttum og krefjandi verkefnum, s.s. stjórnendaráðgjöf, starfsþróunarmálum, vottunum og verkefnastýringu ýmissa þverfaglegra verkefna til styttri sem lengri tíma.

Helstu verkefni og ábyrgð:

  • Þátttaka í mótun stefnu og eftirfylgni með ferlum á sviði mannauðsmála
  • Þróun vinnustaðamenningar í samstarfi við stjórnendur og starfsfólk
  • Virkur stuðningur og ráðgjöf við stjórnendur í mannauðsmálum
  • Þátttaka í innleiðingu á teymisvirkni
  • Fræðsla og starfsþróun fyrir stjórnendur og starfsfólk
  • Þróun ferla og umbóta á sviði mannauðsmála
  • Framkvæmd og eftirfylgni vinnustaðagreininga
  • Samskipti við erlendar starfseiningar EFLU
  • Önnur tilfallandi verkefni

Menntunar- og hæfniskröfur:

  • Háskólamenntun sem nýtist í starfi, framhaldsnám er kostur
  • A.m.k. 5 ára starfsreynsla á sviði mannauðsmála, fræðslu og starfsþróunar
  • Reynsla af samskiptaráðgjöf og að leiða vinnustofur
  • Afburðahæfni í mannlegum samskiptum, þjónustulund og samstarfshæfni
  • Leiðtogahæfni og reynsla af breytingastjórnun
  • Frumkvæði, sjálfstæði og skipulagshæfni
  • Mjög góð tölvufærni er krafa, þekking á Eloomi er kostur
  • Mjög góð íslensku- og enskukunnátta í ræðu og riti

Vinnustaðurinn EFLA:
Öll starfsemi EFLU byggir á teymishugsun þar sem samvinna, þátttaka og samábyrgð í sterkri liðsheild eru grundvallaratriði. Gildi EFLU eru hugrekki, samvinna og traust og leggjum við mikið upp úr því að fá til liðs við okkur kraftmikið, jákvætt og metnaðarfullt starfsfólk sem skarar fram úr á sínu sviði.
Við vinnum fjölbreytt verkefni í teymum þvert á svið og svæði. Ef þú leitar að afbragðs starfsumhverfi, áhugaverðum starfsvettvangi í alþjóðlegu umhverfi og hressu samstarfsfólki þá gætum við átt samleið. EFLA er jafnlaunavottað fyrirtæki, með skýra jafnréttisstefnu og leitumst við að jafna kynjahlutfall innan hinna ýmsu starfa hjá okkur. Við hvetjum því konur jafnt sem karla, til að sækja um starfið.

Auglýsing birt5. janúar 2022
Umsóknarfrestur16. janúar 2022
Tungumálahæfni
Engar sérstakar tungumálakröfur
Staðsetning
Lyngháls 4, 110 Reykjavík
Starfstegund
Hæfni
PathCreated with Sketch.BreytingastjórnunPathCreated with Sketch.FrumkvæðiPathCreated with Sketch.LeiðtogahæfniPathCreated with Sketch.MannauðsstjórnunPathCreated with Sketch.RáðningarPathCreated with Sketch.SamviskusemiPathCreated with Sketch.Sjálfstæð vinnubrögðPathCreated with Sketch.StarfsmannahaldPathCreated with Sketch.Þjónustulund
Starfsgreinar
Starfsmerkingar