Mosfell ehf.
Mosfell ehf.

Reyndur smiður – fjölbreytt byggingarvinna

Mosfell leitar að öflugum og reynslumiklum smiði í fullt starf. Um er að ræða fjölbreytt verkefni tengd viðhaldi, endurbótum og tjónaviðgerðum, bæði innan- og utanhúss.

Við leitum að faglegum og áreiðanlegum einstaklingi sem getur unnið sjálfstætt, leyst ólík verkefni og unnið vel með öðrum. Við leggjum áherslu á fagmennsku, vönduð vinnubrögð og góðan starfsanda.

Við bjóðum upp á fullt starf, fjölbreytt verkefni og samkeppnishæf laun samkvæmt samkomulagi. Æskilegt er að viðkomandi geti hafið störf sem fyrst.

Helstu verkefni og ábyrgð
  • Almenn smíðavinna
  • Viðhald og endurbætur á fasteignum
  • Uppbygging eftir vatns-, raka- og brunatjón
  • Uppsetning, viðgerðir og frágangur
  • Önnur tilfallandi verkefni
Menntunar- og hæfniskröfur
  • Sveinspróf í húsasmíði og/eða mikil reynsla af sambærilegum störfum
  • Sjálfstæð og lausnamiðuð vinnubrögð
  • Vandvirkni, stundvísi og áreiðanleiki
  • Færni í mannlegum samskiptum og geta til að vinna vel með öðrum
  • Góð kunnátta í íslensku eða ensku
  • Gilt bílpróf
Auglýsing birt25. ágúst 2026
UmsóknarfresturEnginn
Tungumálahæfni
EnskaEnska
Nauðsyn
Mjög góð
ÍslenskaÍslenska
Valkvætt
Mjög góð
Staðsetning
Stangarhylur 5, 110 Reykjavík
Starfstegund
Starfsgreinar
Starfsmerkingar