

Rennismiður
Héðinn hf. leitar að lausnamiðuðum rennismið á öflugt renniverkstæði fyrirtækisins í Hafnarfirði.
Hjá Héðni starfar öflugt teymi sem sinnir fjölbreyttum verkefnum fyrir sjávarútveg, orkufyrirtæki og stóriðju. Með yfir 100 ára reynslu leggjum við áherslu á fagmennsku, góð vinnubrögð og trausta þjónustu.
Renniverkstæði Héðins er vel búið bæði tölvustýrðum og handstýrðum rennibekkjum og fræsivélum. Þar er unnið að nýsmíði, endurnýjun, viðhaldi og viðgerðum á fjölbreyttum íhlutum og búnaði fyrir atvinnulífið. Verkefnin eru fjölbreytt og gefa tækifæri til að takast á við bæði stór og smá verkefni í góðu samstarfi við reynslumikið fagfólk.
Farið verður yfir umsóknir jafnóðum og því hvetjum við áhugasama að sækja um sem fyrst.
Fyrir nánari upplýsingar hafið samband við Óttar verkstjóra á [email protected]
- Nýsmíði samkvæmt teikningum
- Viðgerðir og endurnýjanir íhluta
- Viðhaldsverkefni fyrir fjölbreyttan viðskiptahóp
- Reynsla af CNC rennibekkjum
- Sjálfstæð og fagleg vinnubrögð
- Góð íslenskukunnátta
- Niðurgreiddur morgun- og hádegismatur.
- Stórglæsilegt starfsmannarými með golf- og skothermi.
- Líkamsræktaraðstaða og búningsklefar með sturtu.
- Öflugt starfsmannafélag og frábær starfsandi.








