Olís ehf.
Hjá Olís er lögð áhersla á góðan aðbúnað starfsfólks, uppbyggileg samskipti og fagleg vinnubrögð.
Rekstrarstjóri þjónustustöðva Olís
Olís óskar eftir að ráða áhugasaman og metnaðarfullan einstakling í starf rekstrarstjóra þjónustustöðva. Olís rekur yfir 20 þjónustustöðvar víðsvegar um landið og er rekstur þeirra fjölbreyttur. Starfi rekstrarstjóra fylgir ábyrgð á daglegum rekstri þjónustustöðva í góðri samvinnu við verslunarstjóra. Einnig mun rekstrarstjóri taka þátt í ýmsum krefjandi verkefnum sem miða að því að efla starfsemi Olís til lengri tíma. Rekstrarstjóri þjónustustöðva heyrir undir sviðsstjóra smásölusviðs.
Helstu verkefni:
- Daglegur rekstur þjónustustöðva og stuðningur við verslunarstjóra
- Þjálfun starfsfólks
- Uppsetning vaktaplana og mönnun þjónustustöðva
- Vöruframstilling og eftirfylgni með stöðlum
- Önnur tilfallandi verkefni
Hæfniskröfur:
- Menntun sem nýtist í starfi
- Haldbær reynsla af verslunarstjórnun er skilyrði
- Reynsla af stjórnun og mannaforráðum
- Leiðtogahæfileikar, frumkvæði og sjálfstæði í vinnubrögðum
- Framúrskarandi hæfni í mannlegum samskiptum
- Góð íslensku- og enskukunnátta í ræðu og riti
Hjá Olís er lögð áhersla á góðan aðbúnað starfsfólks, uppbyggileg samskipti og fagleg vinnubrögð.
Umsóknarfrestur er til 19. apríl. Nánari upplýsingar veitir Thelma Wilsson sviðsstjóri smásölusviðs, thelma@olis.is
Auglýsing stofnuð5. apríl 2024
Umsóknarfrestur19. apríl 2024
Staðsetning
Skútuvogur 5, 104 Reykjavík
Starfstegund
Hæfni
JákvæðniMannleg samskiptiSamvinnaSkipulagStarfsmannahald
Starfsgreinar
Starfsmerkingar
Fleiri störf (4)