

Rekstrarstjóri MAIKA'I KEF.
Maika’i leitar að öflugum og drífandi rekstrarstjóra til að leiða tvo sölustaði okkar á Keflavíkurflugvelli (KEF).
Um er að ræða lykilstöðu í vaxandi fyrirtæki þar sem hraði, gæði og framúrskarandi þjónusta skipta öllu máli. Við leitum að leiðtoga sem hefur brennandi áhuga á rekstri, teymisvinnu og árangri.
-
Daglegur rekstur tveggja sölustaða
-
Starfsmannastjórnun, ráðningar og þjálfun
-
Vaktaplön og mönnun
-
Eftirlit með sölu og kostnaði
-
Gæðastýring og þjónustustig
-
Birgðastýring og pantanir
-
Samskipti við birgja og samstarfsaðila á KEF
-
Þátttaka í áframhaldandi uppbyggingu og þróun rekstrar
-
Reynsla af rekstri eða stjórnunarstörfum (kostur í veitingarekstri)
-
Leiðtogahæfni og skipulagshæfni
-
Sterk samskiptafærni og jákvætt viðmót
-
Tölugreind og skilningur á rekstrartölum
-
Sjálfstæð vinnubrögð og lausnamiðuð hugsun
-
Góð íslensku- og enskukunnátta
Enska
Íslenska



