

Rekstrarstjóri á bar
Rekstrarstjóri Stúdentakjallarans
Félagsstofnun stúdenta leitar að kraftmiklum og hressum einstaklingi í starf rekstrastjóra Stúdentakjallarans. Um er að ræða fjölbreytt og líflegt starf í hjarta háskólasvæðisins þar sem lögð er áhersla á öflugt viðburðarhald, framúrskarandi þjónustu og fjölbreytt úrval rétta á matseðli. Í Stúdentakjallaranum er auðvelt að leggja amstrið á hilluna og leyfa sér að njóta.
Stúdentakjallarinn er veitinga- og skemmtistaður staðsettur á Háskólatorgi. Staðurinn er opinn öllum og þar má því finna fjölbreyttan hóp viðskiptavina; stúdenta, starfsfólk, gesti og gangandi. Opið er alla daga vikunnar frá kl. 11 – 23, en til kl. 01 fimmtudaga til laugardaga. Á sunnudögum er opið frá kl. 16 – 23.
Rekstrarstjóri vinnur náið með yfirmanni í eldhúsi Stúdentakjallara, markaðsfulltrúa FS, auk annarra stjórnenda og gegnir lykilhlutverki í að tryggja ásýnd, þjónustu og starfsemi staðarins. Starfið hentar einstaklega vel þeim sem vilja hafa jákvæð áhrif á upplifun stúdenta af háskólasamfélaginu, hafa unun að þjónustu í hraðskreiðu og fjölbreyttu umhverfi, og þeim sem hafa annast viðburðarhald að einhverju tagi.
Stúdentakjallarinn er í eigu Félagsstofnunar stúdenta, sem er sjálfseignarstofnun og hefur það aðalmarkmiði að auka lífsgæði stúdenta. FS á og rekur einnig Bóksölu stúdenta, Stúdentagarða, Hámu og Leikskóla stúdenta.
Helstu verkefni og ábyrgð
- Ábyrgð á daglegum rekstri á bar, og umsjón með staðnum.
- Sinnir afgreiðslu og móttöku viðskiptavina yfir daginn.
- Hefur yfirumsjón með ásýnd staðarins og þjónustu við viðskiptavini.
- Ráðningar og þjálfun starfsfólks á bar og heldur utan um vaktaskipulag og útfærslu á vaktaplani.
- Viðburðarstýring; bókanir, skipulag og útfærsla.
Menntunar- og hæfniskröfur
- Reynsla af stjórnunarstarfi á veitingastað, kaffihúsi og/eða bar æskileg.
- Reynsla af viðburðarhaldi er æskileg.
- Frumkvæði.
- Rík þjónustulund.
- Góð samskiptahæfni.
- Skipulagshæfni.
- Almenn tölvukunnátta.
- Góð tök á íslensku og ensku eru skilyrði.
- Þekking á háskólasamfélaginu er kostur.
- Afsláttarkjör í Stúdentakjallaranum, Hámu og Bóksölu stúdenta
Íslenska
Enska










