Intellecta
Um Intellecta:
Intellecta var stofnað árið 2000 og starfar á tveimur sviðum: ráðgjöf og ráðningum. Við vinnum með stjórnum og æðstu stjórnendum við að bæta rekstur og auka verðmæti fyrirtækja og stofnana. Ráðgjafar okkar hafa sterkan faglegan bakgrunn og víðtæka alþjóðlega reynslu.
👉 Ráðningarsvið Intellecta vinnur með stjórnum og æðstu stjórnendum að ráðningum sérfræðinga og stjórnenda. Jafnframt sinna ráðgjafar okkar ráðgjöf til stjórnenda, atvinnuleitenda og starfslokaráðgjöf.
👉 Ráðgjafarsvið Intellecta sinnir verkefnum s.s. á sviði upplýsingatækni, stefnumótunar og stjórnunar auk þess sem kjarakönnun Intellecta hefur veitt stjórnum og stjórnendum góða innsýn inn í þróun launa á markaði.
Á næstunni flytjum við í nýtt og glæsilegt húsnæði að Höfðabakka 9, þar sem boðið verður upp á fyrsta flokks vinnuaðstöðu. Nánari upplýsingar um fyrirtækið má finna á www.intellecta.is.
Rekstrarsérfræðingur
Rótgróið og alþjóðlegt fyrirtæki á höfuðborgarsvæðinu óskar eftir að ráða öflugan rekstrarsérfræðing. Um fullt starf er að ræða og æskilegt að viðkomandi geti hafið störf sem fyrst.
Helstu verkefni:
- Verðútreikningar og verðstefnumótun
- Viðamikil greiningarverkefni
- Vinna að bættum rekstri dótturfyrirtækja
- Undirbúa stofnun eða tilflutning deilda/fyrirtækja
- Önnur tilfallandi verkefni
Hæfniskröfur:
- Menntun á sviði rekstrarverkfræði
- Haldgóð og fjölhæf reynsla í rekstri fyrirtækja
- Hæfni til að vinna við verðútreikninga og verðstefnumótun
- Góð greiningarhæfni
- Mjög góð samskiptahæfni og jákvæðni
- Góð íslensku- og enskukunnátta er skilyrði
Umsóknarfrestur er til og með 13. ágúst 2024. Umsókn óskast fyllt út á www.intellecta.is og þarf henni að fylgja starfsferilskrá og kynningarbréf. Farið verður með allar fyrirspurnir og umsóknir sem trúnaðarmál. Öllum umsóknum verður svarað að ráðningu lokinni.
Nánari upplýsingar veita Sigríður Svava Sandholt (sigridur@intellecta.is) og Þuríður Pétursdóttir (thuridur@intellecta.is) í síma 511 1225.
Auglýsing birt18. júlí 2024
Umsóknarfrestur13. ágúst 2024
Tungumálahæfni
EnskaMjög góð
ÍslenskaMjög góð
Staðsetning
Höfðabakki 9, 110 Reykjavík
Starfstegund
Hæfni
GagnagreiningJákvæðniMannleg samskiptiVerkfræðingur
Starfsgreinar
Starfsmerkingar
Sambærileg störf (12)
Sérfræðingur í stafrænni þróun flutningskerfis raforku
Landsnet hf.
Sérfræðingur í stjórnun flutningskerfis
Landsnet hf.
Hönnuður í teymi þéttbýlistækni á Suðurlandi
EFLA hf
Hönnun og eftirlit á Vesturlandi
EFLA hf
Verkefnastjóri nýframkvæmda
Valsberg Mannvirkjalausnir
Gagnaþróun í mannvirkjagerð
Optimum
BIM-sérfræðingur / ráðgjafi
Optimum
Starf við sölu og ráðgjöf á lækningatækjum
Fastus Heilsa
Deloitte leitar að ráðgjafa í áhugaverð verkefni
Deloitte
Leiðandi sérfræðingur á Samningasviði
Sjúkratryggingar Íslands
Verkefnastjóri
Norðurorka hf.
Verkefnastjórar í mannvirkjagerð
GG Verk ehf