KPMG á Íslandi
KPMG á Íslandi
KPMG á Íslandi

Reikningsskil og endurskoðun - Selfoss

KPMG er alþjóðlegt fyrirtæki sem leggur áherslu á að veita viðskiptavinum sínum framúrskarandi þjónustu á sviði endurskoðunar, reikningsskila, bókhalds, skattskila og viðskiptaráðgjafar. Hjá KPMG á Íslandi starfa um 330 sérfræðingar á 15 skrifstofum þar sem eru frábær tækifæri til starfsþróunar í sveigjanlegu og fjölbreyttu vinnuumhverfi.
Hefur þú áhuga á reikningsskilum og endurskoðun?
Við leitum nú að drífandi og talnaglöggum einstaklingum sem hafa áhuga á að vinna við að veita viðskiptavinum KPMG þjónustu á sviði reikningsskila, skatta og endurskoðunar ársreikninga með starfsstöð á skrifstofu KPMG á Selfossi.
Dæmi um verkefni og ábyrgð:
Þjónusta við fyrirtæki og opinbera aðila á sviði;
  • Endurskoðunar og annarrar staðfestingarvinnu, s.s. á sviði sjálfbærni.
  • Reikningsskila og ársreikningsgerðar.
  • Skattskila og tengdra mála.
Annað;
  • Ýmis ráðgjafartengd verkefni.
  • Verkefni tengd gæðamálum og faglegu starfi KPMG.
  • Aðrar tilfallandi greiningar og verkefni.
Hæfniskröfur:
  • Brennandi áhugi á viðskiptum og að kynnast starfsemi fyrirtækja.
  • Viðskiptamenntun æskileg og kostur að hafa lokið, vera í eða stefna að M.Acc gráðu.
  • Reynsla af endurskoðun, bókhaldi og/eða reikningsskilum er kostur.
  • Góð tölvufærni, greiningarhæfni og enskukunnátta.
  • Frumkvæði, vandvirkni og öguð vinnubrögð.
  • Hæfni til að vinna í teymi sem og sjálfstætt auk ríkrar þjónustulundar.
Í samræmi við markmið okkar í jafnréttismálum hvetjum við allt fólk til að sækja um óháð kyni.
Að vinna hjá KPMG
Okkar markmið er að vera eftirsóknarverður og framúrskarandi vinnustaður fyrir fjölbreyttan hóp af fólki. Við leggjum því mikla áherslu á að bjóða upp á heilbrigt og hvetjandi starfsumhverfi þar sem starfsfólk hefur tækifæri til að vaxa og dafna í starfi. Við náum árangri saman með því að hafa traust, sveigjanleika og góð samskipti að leiðarljósi á vinnustaðnum.
Nokkur dæmi um kosti þess að vinna hjá KPMG:
  • Fjölbreytt verkefni og tækifæri til að hafa jákvæð áhrif á viðskiptavini og samfélagið.
  • Frábær tækifæri til að læra af leiðandi sérfræðingum og þróast í starfi.
  • Aðgangur að heilsustyrk, samgöngustyrk og styrk fyrir tímum hjá sálfræðingi.
  • Sveigjanleiki til að vinna frá mismunandi skrifstofum og að heiman þegar við á.
  • Einn launaður dagur á ári til sjálfboðavinnu.
  • Og margt fleira.
Umsóknarfrestur er til og með 22. september 2024.
Umsóknir ásamt ferilskrá og kynningarbréfi óskast fylltar út á ráðningarsíðu KPMG (hlekkur hér til hliðar til að sækja um).
Nánari upplýsingar veitir Hildur Steinþórsdóttir sérfræðingur í mannauðsmálum á hsteinthorsdottir@kpmg.is.
Auglýsing birt30. ágúst 2024
Umsóknarfrestur22. september 2024
Tungumálahæfni
ÍslenskaÍslenskaFramúrskarandi
EnskaEnskaMjög góð
Staðsetning
Austurvegur 4, 800 Selfoss
Starfstegund
Starfsgreinar
Starfsmerkingar