Útisport
Útisport
Útisport

Reiðhjólaviðgerðarmaður – Útisport Glerártorgi

Við leitum að öflugum og lausnamiðuðum reiðhjólaviðgerðarmanni til starfa á verkstæðinu okkar í Útisport á Glerártorgi.

Ef þú hefur reynslu af reiðhjólaviðgerðum eða annarri viðgerðarvinnu er það mikill kostur. Við leitum að einstaklingi sem vinnur af nákvæmni, hefur góða þjónustulund og nýtur þess að takast á við fjölbreytt verkefni.

Um er að ræða fullt starf. Vinnutími er kl. 10:00–18:00 virka daga og vinna á laugardögum samkvæmt samkomulagi.

Ef þú vilt starfa í líflegu og skemmtilegu starfsumhverfi þar sem hjólreiðar eru í aðalhlutverki og metnaður fyrir góðri þjónustu skiptir máli, þá viljum við heyra frá þér.

Helstu verkefni

  • Viðgerðir og þjónusta á reiðhjólum og rafmagnshjólum.
  • Samsetning reiðhjóla.
  • Afgreiðsla og þjónusta við viðskiptavini.
  • Lagerstörf og almennur frágangur.

Við leitum að einstaklingi sem

  • Er duglegur, skipulagður og lausnamiðaður.
  • Hefur reynslu af reiðhjólaviðgerðum eða sambærilegri viðgerðarvinnu.
  • Hefur góða þjónustulund og samskiptahæfni.
  • Getur unnið bæði sjálfstætt og í teymi.

Áhugasamir eru hvattir til að sækja um með því að senda umsókn og ferilskrá í gegnum Alfred.is fyrir 19. júlí.

Öllum umsóknum verður svarað.

Auglýsing birt10. júlí 2026
Umsóknarfrestur19. júlí 2026
Tungumálahæfni
ÍslenskaÍslenska
Nauðsyn
Meðalhæfni
Staðsetning
Gleráreyrar 1, 600 Akureyri
Starfstegund
Starfsgreinar
Starfsmerkingar