
Varða – Rannsóknastofnun vinnumarkaðarins
Varða Rannsóknastofnun vinnumarkaðarins var stofnuð 2020 og er í eigu Alþýðusambands Íslands og BSRB. Varða sinnir fjölbreyttum rannsóknum er varða lífskjör fólks í víðu samhengi og sinnir auk þess rannsóknastarfsemi fyrir aðildarfélög ASÍ og BSRB. Varða hefur það að markmiði að efla rannsóknir á lífskjörum launafólks og velferð almennings. Nánari upplýsingar um Vörðu á www.rannvinn.is
Rannsóknastjóri
Varða-Rannsóknastofnun vinnumarkaðarins leitar eftir að ráða rannsóknastjóra til starfa. Varða er ung stofnun í uppbyggingarfasa sem er spennandi vettvangur fyrir metnaðarfulla rannsakendur.
Leitað er að einstaklingi sem hefur djúpa og viðamikla þekkingu á megindlegri aðferðafræði rannsókna í félagsvísindum. Getur leitt rannsóknaverkefni í innlendu og/eða erlendu samstarfi, hefur sérfræðiþekkingu á rannsóknarsviði sem tengist vinnumarkaði, kaupum og kjörum, getur unnið úr niðurstöðum rannsókna, birt þær niðurstöður á fræðilegum vettvangi í ritrýndum greinum og greint frá niðurstöðum rannsókna.
Helstu verkefni og ábyrgð
- Leiða aðferðarfræði rannsókna.
- Leiða vinnu við umsóknir um rannsóknarstyrki og fylgjast með tengdum rannsóknum.
- Rannsóknarvinna og úrvinnsla tölfræðilegra gagna og uppbygging gagnasafna.
- Birting niðurstaðna í viðurkenndum fræðatímaritum.
- Kynning niðurstaðna rannsókna á fræðilegum vettvangi.
- Þátttaka í nýsköpun og þróun Vörðu.
- Mótun rannsóknaraðferða og þróun rannsóknarverkefna í samstarfi við aðildarfélög.
- Önnur verkefni sem viðkomandi eru falin af framkvæmdastjóra.
Menntunar- og hæfniskröfur
- Framhaldspróf á háskólastigi sem nýtist við vinnumarkaðstengd rannsóknaverkefni.
- Haldbær þekking og reynsla af greiningu gagna og aðferðarfræði rannsókna.
- Mjög góð reynsla af notkun tölfræðikerfa (t.d. SPSS, Stata, R).
- Góð þekking á vinnumarkaðsmálum og innlendum vinnumarkaði.
- Góð færni í íslensku og ensku í ræðu og riti og hæfni í framsetningu gagna.
- Góð samskipahæfni, lipurð og geta til að vinna í krefjandi umhverfi.
- Frumkvæði, sjálfstæði í starf, ögun í vinnubrögðum.
- Reynsla af því að leiða rannsóknarverkefni er kostur.
- Reynsla af alþjóðastarfi er kostur.
Auglýsing birt11. mars 2024
Umsóknarfrestur20. mars 2024
Tungumálahæfni
Engar sérstakar tungumálakröfur
Staðsetning
Guðrúnartún 1, 105 Reykjavík
Starfstegund
Starfsgreinar
Starfsmerkingar