Rými
Rými
Rými

Rafvirki/tæknimaður

Vegna aukinna verkefna leitum við að rafvirkja/tæknimann til að ganga til liðs við þjónustuteymið okkar. Við leitum eftir öflugum og þjónustuliprum einstaklingi sem er til í að takast á við spennandi og skemmtileg verkefni. Viðkomandi verður að vera ábyrgur, stundvís, hafa framúrskarandi samskiptahæfileika ásamt því að búa yfir hæfni til að starfa sjálfstætt. Við hvetjum fólk af öllum kynjum til að sækja um.

Rými ehf. er fjölskyldufyrirtæki sem hefur verið starfandi frá árinu 1936 en við höfum verið framúrskarandi fyrirtæki á lista Creditinfo síðastliðin 7 ár. Hjá fyrirtækinu starfar samhentur hópur starfsfólks með áratuga reynslu af ráðgjöf, hönnun, þjónustu og uppsetningum á sviðum verslunarinnréttinga, lagerbúnaðar, skjalageymslutækni og búnaði fyrir iðnað, verkstæði, sveitarfélög og opinberar stofnanir.

Helstu verkefni og ábyrgð
  • Þjónusta á tæknibúnaði
  • Uppsetningar á tæknibúnaði
  • Bilanaleit og viðgerðir
  • Úttektir á tæknibúnaði
  • Tilfallandi verkefni
Menntunar- og hæfniskröfur
  • Sveinspróf í rafvirkjun mikill kostur
  • Sjálfstæð vinnubrögð
  • Jákvætt og lausnamiðað hugarfar
  • Mikil hæfni í mannlegum samskiptum
  • Bílpróf
  • Góð íslenskukunnátta
  • Vilji til að ganga í öll verk með bros á vör
Fríðindi í starfi
  • Farsímaáskrift
  • Vinnuföt
Auglýsing birt15. nóvember 2024
Umsóknarfrestur1. desember 2024
Tungumálahæfni
ÍslenskaÍslenska
Nauðsyn
Framúrskarandi
Staðsetning
Gylfaflöt 2-4 2R, 112 Reykjavík
Starfstegund
Hæfni
PathCreated with Sketch.FrumkvæðiPathCreated with Sketch.JákvæðniPathCreated with Sketch.Mannleg samskiptiPathCreated with Sketch.Meistarapróf í iðngreinPathCreated with Sketch.Microsoft OutlookPathCreated with Sketch.ÖkuréttindiPathCreated with Sketch.RaffræðingurPathCreated with Sketch.RafvirkjunPathCreated with Sketch.Samskipti með tölvupóstiPathCreated with Sketch.Sjálfstæð vinnubrögðPathCreated with Sketch.StundvísiPathCreated with Sketch.SveinsprófPathCreated with Sketch.Þjónustulund
Starfsgreinar
Starfsmerkingar