Rými
Rými
Rými

Rafvirki

Vegna aukinna verkefna leitum við að rafvirkja til að ganga til liðs við þjónustuteymið okkar. Við leitum eftir öflugum og þjónustuliprum einstaklingi sem er til í að takast á við spennandi og skemmtileg verkefni. Viðkomandi verður að vera ábyrgur, stundvís, hafa framúrskarandi samskiptahæfileika ásamt því að búa yfir hæfni til að starfa sjálfstætt. Við hvetjum fólk af öllum kynjum til að sækja um.

Rými ehf. er fjölskyldufyrirtæki sem hefur verið starfandi frá árinu 1936 en við höfum verið framúrskarandi fyrirtæki á lista Creditinfo síðastliðin 7 ár. Hjá fyrirtækinu starfar samhentur hópur starfsfólks með áratuga reynslu af ráðgjöf, hönnun, þjónustu og uppsetningum á sviðum verslunarinnréttinga, lagerbúnaðar, skjalageymslutækni og búnaði fyrir iðnað, verkstæði, sveitarfélög og opinberar stofnanir.

Helstu verkefni og ábyrgð
  • Uppsetningar á tæknibúnaði
  • Bilanaleit og viðgerðir
  • Úttektir á tæknibúnaði
  • Tilfallandi verkefni
Menntunar- og hæfniskröfur
  • Sveinspróf í rafvirkjun
  • Sjálfstæð vinnubrögð
  • Jákvætt og lausnamiðað hugarfar
  • Mikil hæfni í mannlegum samskiptum
  • Bílpróf
  • Góð íslenskukunnátta
  • Vilji til að ganga í öll verk með bros á vör
Fríðindi í starfi
  • Farsímaáskrift
  • Vinnuföt
Auglýsing stofnuð17. nóvember 2023
Umsóknarfrestur4. desember 2023
Starfstegund
Staðsetning
Gylfaflöt 2-4 2R, 112 Reykjavík
Hæfni
PathCreated with Sketch.FrumkvæðiPathCreated with Sketch.JákvæðniPathCreated with Sketch.Mannleg samskiptiPathCreated with Sketch.ÖkuréttindiPathCreated with Sketch.RafvirkjunPathCreated with Sketch.RafvirkjunPathCreated with Sketch.Sjálfstæð vinnubrögðPathCreated with Sketch.StundvísiPathCreated with Sketch.SveinsprófPathCreated with Sketch.Þjónustulund
Starfsgreinar
Starfsmerkingar
Fleiri störf (1)