Wise ehf.
Wise ehf.

Ráðgjafi í viðskiptalausnum

Wise óskar eftir að ráða metnaðarfullan einstakling í fjölbreytt starf ráðgjafa viðskiptalausna á skrifstofur fyrirtækisins í Reykjavík og Akureyri.

Leitað er lausnamiðuðum einstakling sem hefur áhuga á hröðum heimi upplýsingatækninnar. Mikilvægt er að viðkomandi búi yfir framúrskarandi samskiptahæfni og drifkrafti.

Helstu verkefni og ábyrgð:

  • Ráðgjöf til viðskiptavina á Microsoft Business Central
  • Ráðgjöf um notkun kerfa fyrirtækisins
  • Þjónusta, ráðgjöf, þarfagreiningar og ferlagreiningar
  • Samskipti við viðskiptavini og virk tengslamyndun

Menntunar- og hæfniskröfur

  • Háskólamenntun sem nýtist í starfi
  • Reynsla af notkun Microsoft Business Central / Navision
  • Reynsla af innkaupum, birgðahaldi, vöruhúsum, tollskýrslugerð og/eða smásölu er kostur
  • Reynsla af bókhaldi og launavinnslu er kostur
  • Reynsla af LSRetail er kostur
  • Reynsla og áhugi á Power Platform er kostur
  • Þekking og áhugi á stafrænum lausnum og nýjungum
  • Drifkraftur og frumkvæði
  • Framúrskarandi samskipta- og samstarfshæfni

Wise er ört vaxandi þekkingarfyrirtæki, sem sérhæfir sig í stafrænum lausnum og býður yfirgripsmikla þjónustu fyrir fyrirtæki með það að markmiði að veita viðskiptavinum forskot í rekstri þeirra.

Í boði er skemmtilegt starf hjá spennandi fyrirtæki með miklum framtíðartækifærum. Umsóknarfrestur er til og með 25. febrúar 2025. Umsókninni þarf að fylgja starfsferilskrá. Farið verður með allar umsóknir sem trúnaðarmál og þeim svarað að ráðningu lokinni. Nánari upplýsingar veita Lea Kristín Guðmundsdóttir ([email protected]) og Birna Dís Bergsdóttir ([email protected]) í síma 511 1225.

Auglýsing birt13. febrúar 2025
Umsóknarfrestur25. febrúar 2025
Tungumálahæfni
ÍslenskaÍslenska
Nauðsyn
Mjög góð
Staðsetning
Ofanleiti 2, 103 Reykjavík
Starfstegund
Hæfni
PathCreated with Sketch.BirgðahaldPathCreated with Sketch.FrumkvæðiPathCreated with Sketch.Mannleg samskiptiPathCreated with Sketch.Microsoft Dynamics 365 Business CentralPathCreated with Sketch.Microsoft Power PlatformPathCreated with Sketch.Navision
Starfsgreinar
Starfsmerkingar