Hagar
Hagar

Ráðgjafi í viðskiptakerfum (Business Central)

Hagar hf., eitt stærsta fyrirtæki í smásölu á Íslandi, er að byggja upp stafræna framtíð sína og leitar nú að öflugum Business Central ráðgjafa sem hefur brennandi áhuga á að vinna í nútímalegu umhverfi.

Hjá Högum kappkostum við að þróa lausnir sem bæta þjónustu við viðskiptavini auk þess að auka skilvirkni í rekstri samstæðunnar. Þannig stuðlum við að því að tryggja viðskiptavinum okkar í senn besta mögulega vöruverð og jákvæðustu notendaupplifunina.

Hvað þú munt gera:

  • Greina þarfir notenda og finna bestu lausnir innan BC til að mæta þeim
  • Hanna og innleiða breytingar til að uppfylla kröfur notenda
  • Veita faglega ráðgjöf, leiðbeina og styðja notendur
  • Fylgjast með og stýra uppfærslum ásamt samþættingum við önnur kerfi
  • Taka þátt í uppbyggingu ERP teymis og mótun vinnubragða

Við leitum að liðsfélaga sem:

  • Hefur reynslu og þekkingu á Microsoft Dynamics 365 Business Central eða sambærilegum ERP kerfum
  • Hefur reynslu af góðum vinnubrögðum í hugbúnaðarþróun
  • Hefur ef til vill þekkingu á ERP lausnum LS Retail og Wise
  • Er með háskólamenntun sem nýtist í starfi

Við bjóðum þér:

  • Tækifæri til að vera hluti af framsækinni stafrænni umbreytingu hjá leiðandi íslensku fyrirtæki
  • Hvetjandi og skapandi vinnuumhverfi þar sem tækni og nýsköpun eru í fyrirrúmi
  • Sveigjanlegan vinnutíma og jafnvægi milli vinnu og einkalífs
  • Aðgang að sterkum teymum sem deila þekkingu og hjálpa til við faglegan vöxt
  • Tækifæri til að móta stafræna framtíð Haga hf.

Við nálgumst teymisuppbyggingu með opnum hug og hvetjum því til umsóknar, hvort sem þú hefur reynslu af öllu ofangreindu eða telur til einfaldlega geta vaxtið til verksins.

Ef þú hefur metnað fyrir því að vinna í framsæknu og metnaðarfullu umhverfi, vonumst við eftir umsókn ásamt ferilskrá og kynningarbréfi (í einu skjali). Umsóknarfrestur er til og með 26. mars nk.

Vakin er athygli á því að unnið verður úr umsóknum jafnóðum og þær berast.

Nánari upplýsingar veitir:
Kristján Pétur Sæmundsson, Brú Talent, [email protected]

Auglýsing birt12. mars 2025
Umsóknarfrestur26. mars 2025
Tungumálahæfni
ÍslenskaÍslenska
Nauðsyn
Mjög góð
EnskaEnska
Nauðsyn
Mjög góð
Staðsetning
Holtagarðar, 104 Reykjavík
Starfstegund
Starfsgreinar
Starfsmerkingar