
dk hugbúnaður ehf.
dk hefur selt einn vinsælasta viðskiptahugbúnað landsins í yfir aldarfjórðung, alhliða viðskipta- og upplýsingakerfi, sem er þróað á Íslandi fyrir íslenskar aðstæður.
Í dag eru notendur dk hugbúnaðar hérlendis um 11.000, úr flestum atvinnugreinum og fjölgar ört. Hýsingarþjónusta dk er ein sú stærsta á landinu í dag og eru yfir 31.000 fyrirtæki í hýsingu hjá dk hugbúnaði.
Hjá dk starfar samheldinn hópur fólks við þróun og þjónustu viðskiptalausna. Starfsfólk dk býr yfir miklum styrkleikum og um árabil hefur dk fengið viðurkenningar sem Framúrskarandi fyrirtæki hjá Creditinfo, Framúrskarandi fyrirtæki í rekstri Keldunnar og Viðskiptablaðsins ásamt því að fá viðurkenningu Jafnvægisvogarinnar síðastliðin þrjú ár.
Leiðarljós dk er að vera skemmtilegur og lifandi vinnustaður þar sem metnaðarfullir einstaklingar fá að njóta sín og þróast í starfi. Nánari upplýsingar um dk má finna á www.dk.is.
dk er í eigu TSS (Total Specific Solutions), sem er með yfir 185 fyrirtæki í heiminum í dag í 32 löndum. Fyrirtæki í eigu TSS á Norðurlöndunum eru í dag 19 og þar af 2 á Íslandi.

Ráðgjafi í þjónustuteymi
Við leitum að þjónustulunduðum og tækniliprum einstaklingi í öflugt teymi ráðgjafa dk.
Teymið aðstoðar viðskiptavini og svarar fyrirspurnum varðandi allar þær hugbúnaðarlausnir sem boðið er upp á. Ráðgjöfin er veitt í gegnum rafræn erindi og í símsvörun.
Það er markmið dk að veita framúrskarandi þjónustu til viðskiptavina sinna með jákvæðni og útsjónarsemi að leiðarljósi.
Helstu verkefni og ábyrgð
- Ráðgjöf og þjónusta við viðskiptavini
- Ráðgjöf og þjónusta við uppsetningu á viðskiptakerfum fyrir viðskiptavini
- Tæknileg aðstoð til viðskiptavina
Menntunar- og hæfniskröfur
- Viðskiptafræði, tölvunarfræði eða skyldar greinar
- Góð þekking og reynsla af dk eða sambærilegum kerfum er kostur
- Reynsla af þjónustustörfum við hugbúnaðarlausnir er kostur
- Bókhaldsþekking er kostur
- Jákvætt viðhorf og góð færni í samskiptum
Fríðindi í starfi
- Íþróttastyrkur
- Símastyrkur
- Gott mötuneyti
- Skemmtilegir vinnufélagar
- Öflugt starfsmannafélag
Auglýsing birt17. febrúar 2025
Umsóknarfrestur2. mars 2025
Tungumálahæfni

Nauðsyn
Staðsetning
Dalvegur 30, 201 Kópavogur
Starfstegund
Vinnuumhverfi
Starfsgreinar
Starfsmerkingar
Sambærileg störf (12)

Umsjónarmaður bókhalds og rekstrar
Sólheimar ses

Hugbúnaðarsérfræðingur
Verkís

Viðskiptafræðingur á fjármálasvið
Verkís

Liðsauki í tjónaþjónustu Varðar
Vörður tryggingar

Þjónusturáðgjafi Mercedes-Benz
Bílaumboðið Askja

Þjónusturáðgjafi innri þjónustu
Bílaumboðið Askja

Sumarstörf á Reykjanesi
Securitas

Summer Employee - Associate Software Engineer
Marel

DevOps
Helix Health

Forritari í þróunarteymi
dk hugbúnaður ehf.

Ráðgjafi í tækniteymi
dk hugbúnaður ehf.

Sérfræðingur í stafrænum lausnum og greiðslum
Íslandsbanki