Sveitarfélagið Skagafjörður
Sveitarfélagið Skagafjörður
Sveitarfélagið Skagafjörður

Ráðgjafarþroskaþjálfi

Sveitarfélagið Skagafjörður óskar eftir að ráða í stöðu ráðgjafarþroskaþjálfa á fjölskyldusviði. Um 50-100% starfshlutfall er að ræða og er æskilegt að viðkomandi geti hafið störf sem fyrst.

Meginstarf ráðgjafa er að veita faglega ráðgjöf til fullorðinna, foreldra og fagfólks innan sveitarfélagsins. Uppeldi, líðan og velferð barna, fullorðinna og fjölskyldna eru meginstef starfsins og er það hlutverk ráðgjafa að tryggja gæði þjónustu með það að leiðarljósi að mæta megi hverjum einstaklingi þar sem hann er staddur. Gert er ráð fyrir að ráðgjafi sé fær um að veita markvissa einstaklingsbundna þjónustu sem og sérhæfðan stuðning með það að markmiði að tryggja farsæld barna og sérhæfðan stuðning til fullorðinna. Málstjórn í samþættum málum er hluti af starfinu og stjórnun og/eða þátttaka í stuðningsteymum í þjónustu í þágu farsældar barna. Ráðgjafi starfar náið með öðrum stofnunum sveitarfélagsins og sérfræðingum fjölskyldusviðs.

Menntunarkröfur:

  • Háskólamenntun og starfsleyfi sem þroskaþjálfi eða önnur sambærileg menntun á sviði félags-, heilbrigðis- og menntavísinda.

Hæfniskröfur:

  • Umfangsmikil þekking og farsæl reynsla af ráðgjöf og þjónustu við fatlað fólk.
  • Haldgóð þekking á sviði fötlunar.
  • Þekking og reynsla á innleiðingu á hugmyndafræði um þjónandi leiðsögn er mikilvæg ásamt þekkingu á hugmyndafræði samnings Sameinuðu þjóðanna um réttindi fatlaðs fólks.
  • Þekking á lögum og reglugerðum sem varða þjónustu við fatlað fólk er æskileg.
  • Framúrskarandi samskiptahæfni, lausnamiðaða nálgun verkefna og hæfileiki til að greiða úr erfiðum samskiptamálum.
  • Frumkvæði, sjálfstæði, fagmennska, skipulagshæfni og nákvæmni.
  • Góð íslensku- og enskukunnátta í ræðu og riti.
  • Almenn ökuréttindi.
  • Hreint sakavottorð.

Laun eru samkvæmt kjarasamningum Sambands íslenskra sveitarfélaga við Bandalag háskólamanna.

Nánari upplýsingar um starfið veitir Rakel Kemp Guðnadóttir, leiðtogi farsældar, fræðslu og ráðgjafar, [email protected], s. 455 6000.

Einungis er tekið við rafrænum umsóknum á heimasíðu sveitarfélagsins (laus störf). Með umsókn skal fylgja kynningarbréf þar sem í stuttu og kjarnyrtu máli er gert grein fyrir kostum umsækjanda sem nýtast í starfi, ferilskrá og afrit af prófskírteini/prófskírteinum.

Áhugasamir einstaklingar, óháð kyni, eru hvattir til að sækja um. Öllum umsóknum verður svarað þegar ákvörðun um ráðningu hefur verið tekin.

Auglýsing birt29. janúar 2025
Umsóknarfrestur12. febrúar 2025
Tungumálahæfni
ÍslenskaÍslenska
Nauðsyn
Mjög góð
EnskaEnska
Nauðsyn
Meðalhæfni
Staðsetning
Skagfirðingabraut 17-21, 550 Sauðárkrókur
Starfstegund
Hæfni
PathCreated with Sketch.Almenn ökuréttindiPathCreated with Sketch.FrumkvæðiPathCreated with Sketch.Hreint sakavottorðPathCreated with Sketch.JákvæðniPathCreated with Sketch.Mannleg samskiptiPathCreated with Sketch.Sjálfstæð vinnubrögð
Vinnuumhverfi
Starfsgreinar
Starfsmerkingar