Ráðgjafar/ stuðningsfulltrúar óskast á öryggis- og réttargeðdeildir
Við viljum ráða til starfa öfluga liðsmenn á öryggis- og réttargeðdeild Landspítala. Starfshlutfall er samkomulag, unnið er í vaktavinnu og eru störfin laus frá 1. nóvember 2024 eða eftir samkomulagi.
Öryggisgeðdeildin er átta rúma og sinnir sérhæfðri meðferð og endurhæfingu sjúklinga með alvarlegar geðraskanir. Réttargeðdeildin er 8 rúma deild sem veitir sérhæfða meðferð og umönnun einstaklinga sem hafa verið dæmdir ósakhæfir samkvæmt 15.gr hegningarlaga.
Meðferðarnálgun deildanna er fjölþætt og ræðst af þörfum og getu hvers og eins sjúklings. Meginmarkmið meðferðarinnar er að sjúklingar fái þá meðferð og endurhæfingu sem er nauðsynleg til þess að þeir geti komist aftur út í samfélagið.
Áhersla er lögð á fagmennsku, þróun, öryggi og umhyggju.
Menntunar- og hæfniskröfur
Góð samstarfshæfni og framúrskarandi færni í samskiptum
Viðbótarmenntun sem nýtist í starfi er kostur
Reynsla af vinnu með einstaklingum með flókinn geðrænan vanda er kostur
Jákvætt hugarfar, metnaður og áhugi á að starfa í þverfaglegu teymi
Áhugi á starfi með fólki með geðræna sjúkdóma
Góð almenn tölvukunnátta
Íslenskukunnátta er áskilin, kunnátta í öðrum tungumálum er kostur
Helstu verkefni og ábyrgð
Stuðlar að öryggi sjúklinga og starfsfólks með því að framfylgja verklagi og vera virkur þátttakandi í varnarteymiverkefnum
Virk þátttaka í hjúkrun og meðferð inniliggjandi sjúklinga
Styður sjúkling til daglegrar virkni, framfylgir meðferðasamningum og hjúkrunaráætlunum
Þátttaka í þverfaglegu samstarfi
Hefur umsjón með ýmsum störfum sem snúa að daglegum rekstri deildar
Þátttaka í umbótastarfi og þróun þjónustunnar
Stuðlar að góðum starfsanda