RARIK ohf.
RARIK ohf.
RARIK ohf.

Ráðagóðir rafvirkjar í Borgarnesi

Taktu þátt í að veita viðskiptavinum okkar framúrskarandi þjónustu og treysta undirstöðu þriðju orkuskiptanna á Íslandi. Við leitum að rafvirkjum sem geta eflt starfsstöð okkar í Borgarnesi með jákvæðu viðhorfi og drifkrafti. Við köllum sérstaklega eftir fólki með góða öryggisvitund og jákvætt og lausnamiðað hugarfar.

Helstu verkefni og ábyrgð

Framkvæmdaflokkar okkar vinna fjölbreytt verkefni í sveitum og bæjum landsins og eru oft andlit okkar útávið. Meðal helstu verkefna eru umsjón með uppbyggingu og viðhaldi á stærsta dreifikerfi landsins, bæði háspennu- og lágspennustrengi, vinna við aðveitustöðvar, háspennulínur og önnur tilfallandi störf. Einnig þarf að hafa gott eftirlit með tækjum og búnaði og sinna viðgerðum jafnt sem nýframkvæmdum. Um tvö stöðugildi er að ræða og felur annað þeirra í sér samblöndu af vinnu með framkvæmdaflokkum og umsjón með lager okkar á Borgarnesi.   

Menntunar- og hæfniskröfur

Við óskum eftir fólki með sveinspróf í rafvirkjun eða vélvirkjun sem hefur góða tölvukunnáttu og jákvætt og lausnamiðað hugarfar. Bílpróf er skilyrði og mikill kostur ef aukin ökuréttindi til aksturs á þyngri bílum fylgja með. Góð aðlögunarhæfni, vilji til að læra og geta til að horfa á og hugsa um hlutina uppá nýtt í hraðri tækniþróun orkugeirans eru eiginleikar sem við leitum eftir. Við kunnum einnig að meta hjálpsemi, náungakærleik og virðingu fyrir fólki og náttúrunni. Mikilvægt er að hafa góða öryggisvitund þegar kemur að störfum í framkvæmdaflokkum okkar og hafa hugrekki til að taka öryggissamtalið í öllum aðstæðum. 

Auglýsing birt6. mars 2025
Umsóknarfrestur23. mars 2025
Tungumálahæfni
Engar sérstakar tungumálakröfur
Staðsetning
Sólbakki 1, 310 Borgarnes
Starfstegund
Hæfni
PathCreated with Sketch.Ökuréttindi
Starfsgreinar
Starfsmerkingar