
Fjarðabyggð
Fjarðabyggð er það sveitarfélag sem austast liggur á landinu með rúmlega 5.000 íbúa. Það varð til við samruna 14 sveitarfélaga sem fór fram í nokkrum áföngum á árunum 1988 til 2018 og er Fjarðabyggð því eitt yngsta sveitarfélag landsins. Þú ert á góðum stað eru kjörorð sveitarfélagsins.
Í Fjarðabyggð eru stórbrotnir firðir og tignarleg fjöll aðeins brot af því besta. Menning og fjölbreytt mannlíf er ekki síður minnistætt þeim sem heimsækja sveitarfélagið. Eitt af öðru raða lágreist sjávarþorpin sér meðfram strandlengjunni, hvert með sínum bæjarbrag og áhugaverðu sérkennum.
Bæjarkjarnar sveitarfélagsins eru sjö talsins og jafnan kenndir við firðina eða víkurnar sem þeir standa við. Það er þó ekki einhlítt. Neskaupstaður í Norðfirði er fjölmennasta byggðin, með um 1.500 íbúa, en minnst er Brekkuþorp í Mjóafirði með 15 íbúa. Á Eskifirði eru íbúar um 1.000 talsins og tæplega 1.300 búa á Reyðarfirði. Á Fáskrúðsfirði eru íbúar um 700, um 200 manns búa á Stöðvarfirði og í Breiðdal búa einnig um 200 manns.
Fjarðabyggð byggir á sterkum grunni hvað atvinnu- og verðmætasköpun varðar. Gjöful fiskimið eru undan ströndum Austfjarða og er útgerð og vinnsla sjávarafurða ein af meginstoðum atvinnulífsins ásamt álframleiðslu og tengdum þjónustugreinum. Verslun og þjónusta gegna einnig mikilvægu hlutverki og hefur ferðaþjónusta vaxið hratt á undanförnum árum. Þá jókst mikilvægi landbúnaðar í Fjarðabyggð árið 2018 með sameiningu sveitarfélagsins við landbúnaðarhéraðið Breiðdal.

Píanókennari við Tónlistarskóla Eskifjarðar og Reyðarfjarðar
Tónlistarskóli Eskifjarðar og Reyðarfjarðar óska eftir að ráða píanókennara frá og með 1. ágúst 2023 skólaárið 2023-2024.
Í Tónlistarskóla Eskifjarðar og Reyðarfjarðar eru rúmlega 110 nemendur. Kennsla fer fram að mestu á skólatíma. Tónlistarskólinn býr að góðri aðstöðu og er til húsa í sama húsnæði og grunnskólarnir á Eskifirði og Reyðarfirði. Gott samstarf er við grunnskólana og góður starfsandi.
Helstu verkefni og ábyrgð
Kennsla á píanó
Möguleiki á kennslu á fleiri hljóðfæri ef áhugi er fyrir hendi
Möguleiki á tónfræðikennslu
Menntunar- og hæfniskröfur
Tónlistarkennaramenntun eða haldgóð menntun sem nýtist í starfi
Góð færni í hljóðfæraleik
Reynsla af kennslu eða menntun í uppeldisfræði
Hæfni í mannlegum samskiptum
Sjálfstæði í vinnubrögðum
Hreint sakavottorð
Fríðindi í starfi
Íþrótta- og tómstundastyrkur
Auglýsing stofnuð24. maí 2023
Umsóknarfrestur5. júní 2023
Starfstegund
Staðsetning
Hafnargata 2, 730 Reyðarfjörður
Starfsgreinar
Starfsmerkingar
Fleiri störf (5)

Ráðgjafi í félagsþjónustu
Fjarðabyggð Reyðarfjörður 15. júní Fullt starf

Trommukennari
Fjarðabyggð Reyðarfjörður 5. júní Fullt starf

Starfsmaður á heimili fyrir fatlaða
Fjarðabyggð Reyðarfjörður 5. júní Fullt starf (+1)

Umsjónarkennari við Grunnskóla Fáskrúðsfjarðar
Fjarðabyggð Fáskrúðsfjörður 31. maí Fullt starf

Þjónustufulltrúi á bæjarskrifstofu Fjarðabyggðar
Fjarðabyggð Reyðarfjörður 2. júní Fullt starf
Sambærileg störf (10)

Gítarkennari við Tónlistarskóla Árnesinga
Tónlistarskóli Árnesinga 10. júní Hlutastarf

Tónmenntakennari í 1.-7. árgangi
Vallaskóli, Selfossi Selfoss 5. júní Hlutastarf

Trommukennari
Fjarðabyggð Reyðarfjörður 5. júní Fullt starf

Smíðakennari
Egilsstaðaskóli Egilsstaðir 30. maí Fullt starf (+1)

Íþróttakennari
Egilsstaðaskóli Egilsstaðir 30. maí Tímabundið

Söngmálastjóri Þjóðkirkjunnar
Þjónustumiðstöð kirkjunnar - Biskupsstof... Reykjavík 5. júní Fullt starf

Ert þú að leita að ævintýrum?
Reykjahlíðarskóli Mývatn 1. júní Fullt starf (+2)

Lausar kennarastöður í Þjórsárskóla Skeiða-og Gnúpverjahrepp
Þjórsárskóli
Tónskólinn á Hólmavík auglýsir eftir tónlistarkennara
Sveitarfélagið Strandabyggð Hólmavík 30. maí Fullt starf

Laus störf skólastjóra og kennara við Tónskóla Mýrdalshrepps
MýrdalshreppurMá bjóða þér smákökur? Alfreð notar vafrakökur til að greina umferð um vefinn og bæta upplifun þína. Sjá meira.