Hafnarfjarðarbær
Hafnarfjarðarbær
Hafnarfjarðarbær

Píanókennari - Tónlistarskóli Hafnarfjarðar

Tónlistarskóli Hafnarfjarðar auglýsir eftir píanókennara, um 100% starf er að ræða.

Í Tónlistarskóla Hafnarfjarðar er lögð áhersla á skapandi og gefandi námsumhverfi þar sem allir aðilar leitast við að gera námið í senn áhugavert og skemmtilegt. Við leggjum áherslu á góðan starfsanda og fjölbreytta kennsluhætti.

Í Tónlistarskóla Hafnarfjarðar eru um 600 nemendur og 50 kennarar.

Helstu verkefni og ábyrgð:

  • Píanókennsla samkvæmt aðalnámskrá tónlistarskólanna
  • Önnur verkefni samkvæmt starfslýsingu.

Menntunar- og hæfniskröfur:

  • Framhaldsnám í píanóleik
  • Reynslu að starfa með nemendum
  • Lipurð í samskiptum, sveigjanleiki og samstarfshæfni
  • Frumkvæði og sjálfstæði í vinnubrögðum
  • Jákvætt viðmót og góð hæfni í mannlegum samskiptum
  • Áhugi á að starfa í skapandi og metnaðarfullu umhverfi
  • Stundvísi og samviskusemi
  • Góð íslenskukunnátta er áskilin. Miðað er við hæfniviðmið C1 samkvæmt viðmuðum Evrópska tungumálarammans, Sjálsmatsrammi

Skilyrði er að viðkomandi hafi hreint sakavottorð.

Nánari upplýsingar veitir Eiríkur Stephensen, skólastjóri, í síma 664-5882 og í gegnum tölvupóst [email protected] og Stefán Ómar Jakobsson, aðstoðarskólastjóri, í síma 664-5884 og í gegnum tölvupóst [email protected]

Umsóknarfrestur er til og með 3. sept 2026.

Greinargóð ferilsskrá fylgi umsókn.

Launakjör eru samkvæmt kjarasamningi Sambands íslenskra sveitarfélaga og FT/FÍH.

Vakin er athygli á stefnu Hafnarfjarðarbæjar að jafna hlutfall kynjanna í störfum hjá bænum og að vinnustaðir bæjarins endurspegli fjölbreytileika samfélagins.

Auglýsing birt19. ágúst 2026
Umsóknarfrestur3. september 2026
Tungumálahæfni
ÍslenskaÍslenska
Nauðsyn
Mjög góð
Staðsetning
Strandgata 51, 220 Hafnarfjörður
Starfstegund
Starfsgreinar
Starfsmerkingar