Listaskóli Mosfellsbæjar
Listaskóli Mosfellsbæjar
Listaskóli Mosfellsbæjar

Píanókennari

Listaskóli Mosfellsbæjar skiptist í tónlistardeild sem er stærsta deildin innan skólans, Skólahljómsveit Mosfellsbæjar, Leikfélag Mosfellssveitar og Myndlistarskóla Mosfellsbæjar. Þessir aðilar vinna saman að öflugri listkennslu fyrir börn í sveitarfélaginu, svo og öflugu lista- og menningarstarfi í Mosfellsbæ.

Aðal starfsstöð tónlistardeildar er í húsnæði Listaskólans á 3. og 4. hæð að Bjarkarholti 2, en skólinn starfar einnig í mjög góðu samstarfi í öllum grunnskólum bæjarins. Leitum við eftir píanókennara til afleysinga sem myndi starfa í Bjarkarholti og líklega einum grunnskóla bæjarins. Starfshlutfall yrði í kring um 50%.

Mosfellsbær er öflugt og eftirsótt sveitarfélag þar sem gildin virðing, jákvæðni, framsækni og umhyggja eru leiðarljós starfsmanna í daglegu starfi.

Menntunar- og hæfniskröfur

Háskólapróf píanóleik og/eða píanókennslu, ásamt kennslureynslu á hljóðfærið.
Góð íslenskukunnátta er skilyrði ásamt færni í samvinnu og samskiptum. 
Faglegur metnaður og áhugi á sköpun, starfsþróun og fjölbreytni í skólastarfi.

Auglýsing birt10. ágúst 2026
Umsóknarfrestur24. ágúst 2026
Tungumálahæfni
ÍslenskaÍslenska
Nauðsyn
Framúrskarandi
Staðsetning
Bjarkarholt 2, 270 Mosfellsbær
Starfstegund
Starfsgreinar
Starfsmerkingar