
Stroff
www.stroff.is er netverslun í eigu Sjafnar Kristjánsdóttur og Grétars Karls Arasonar.
Við hönnum og seljum prjónauppskriftir, og seljum garn og prjónatengda fylgihluti í verslun okkar Skipholti 25.
Petit Knitting ehf hefur starfað síðan í mars 2017 og hefur náð ótrúlegum vinsældum og útbreiðslu síðan þá.
Þýðandi prjónauppskrifta íslenska/danska
Petit Knitting leitar að reyndum prjónara sem treystir sér til að þýða prjónauppskriftir frá íslensku yfir á dönsku. Kostur ef viðkomandi getur einnig þýtt á önnur norræn mál.
Það er skilyrði að viðkomandi hafi haldbæra þekkingu á prjónaskap til að geta skilið verkefnin sem hann tekur að sér.
Hæfniskröfur:
- Mjög gott vald á íslenskri og danskri tungu
- Haldbær þekking á prjónaskap
- Sjálfstæð vinnubrögð
- Góð færni á Word
- Heiðarleiki og frumkvæði
- Þjónustulund og hæfni í mannlegum samskiptum
Greiðslur verða eftir samkomulagi, en um er að ræða verktakavinnu þar sem greitt er fyrir unnið verk, þ.e. fast verð fyrir hverja þýdda uppskrift. Viðkomandi kemur því til með að ráða sínum vinnutíma sjálfur og skilar verkefnum innan tímaramma sem ákveðinn er í sameiningu.
Auglýsing birt22. september 2018
UmsóknarfresturEnginn
Tungumálahæfni
Engar sérstakar tungumálakröfur
Staðsetning
Stóragerði 36, 108 Reykjavík
Starfstegund
Starfsgreinar
Starfsmerkingar