Félags- og skólaþjónusta Rangárvalla- og Vestur-Skaftafellssýslu
Félags- og skólaþjónusta Rangárvalla- og Vestur-Skaftafellssýslu
Félags- og skólaþjónusta Rangárvalla- og Vestur-Skaftafellssýslu

Óskað er eftir leikskólaráðgjafa tímabundið í eitt ár.

Skólaþjónusta Rangárvalla- og Vestur-Skaftafellssýslu, auglýsir eftir leikskólaráðgjafa í 100% starfshlutfall. Ráðning er tímabundin í eitt ár með möguleika á áframhaldandi ráðningu.
Eftirtalin sveitarfélög reka Félags- og skólaþjónustu Rangárvalla- og Vestur-Skaftafellssýslu: Ásahreppur, Rangárþing Ytra, Rangárþing Eystra, Mýrdalshreppur og Skaftárhreppur. Íbúar á svæðinu eru u.þ.b. 6000 og þjónustar stofnunin fimm leikskóla og fimm grunnskóla. Næsti yfirmaður leikskólaráðgjafa er teymisstjóri skólaþjónustu.

Helstu verkefni og ábyrgð
  • Er leikskólastjórum og öðrum starfsmönnum leikskóla til ráðgjafar um fagleg málefni, skipulag leikskóla, ásamt uppeldis- og menntastarfi í leikskólum
  • Fylgist með uppeldis- og menntastarfi, aðbúnaði í leikskólum og leiðbeinir í samráði við yfirmann
  • Veitir ráðgjöf vegna foreldrasamstarfs í leikskólum
  • Er ráðgefandi varðandi starfsmannamál og aðstoðar við lausn á málum ef á þarf að halda
  • Er ráðgefnadi í sérverkefnum, þróunarverkefnum og nýbreytni í starfi, miðlar þekkingu og nýjungum á sviði leikskólafræða
  • Veitir fræðslu og stuðlar að samstarfi og upplýsingamiðlun til leikskóla og á milli leikskóla
  • Hefur umsjón með fagbókasafni, hugmyndabanka og öflun gagna varðandi ýmis leikskólamál
  • Hefur samstarf við þá aðila er þurfa þykir varðandi leikskólana
  • Vinnur önnur verkefni er varða leikskólamál sem yfirmaður felur honum
Menntunar- og hæfniskröfur

Leikskólakennaramenntun og leyfisbréf kennara

Framhaldsmenntun á sviði uppeldis- og menntunarfræða og/eða stjórnunar eða önnur menntun sem nýtist í starfi

Krafist er góðrar hæfni í mannlegum samskiptum, sjálfstæðis, sveigjanleika ásamt skapandi og lausnamiðaðra vinnubragða

Góð íslenskukunnátta í ræðu og riti er skilyrði

Æskilegt er að viðkomandi hafi þekkingu á gagnasöfnun og úrvinnslu þroska- og hegðunarmælitækja

Reynsla af stjórnun í leikskóla er kostur

Auglýsing birt1. ágúst 2025
Umsóknarfrestur25. ágúst 2025
Tungumálahæfni
ÍslenskaÍslenska
Nauðsyn
Mjög góð
Staðsetning
Suðurlandsvegur 3, 850 Hella
Starfstegund
Starfsgreinar
Starfsmerkingar