
Orkubú Vestfjarða ohf
Í boði er áhugavert starfsumhverfi með krefjandi og fjölbreyttum verkefnum hjá traustu fyrirtæki og er hópurinn samheldinn og metnaður mikill.
Áratuga reynsla
Orkubú Vestfjarða ohf. býr að áratuga reynslu við virkjun vatnsafls og jarðhita og dreifingu og sölu raforku. Fyrirtækið á og rekur orkuver og raforkustöðvar til raforkuframleiðslu, ásamt nauðsynlegum mannvirkjum til raforkuflutnings og raforkudreifingar, jarðvarmavirki og fjarvarmakyndistöðvar ásamt nauðsynlegu dreifikerfi.
Fyrirtækið var stofnað þann 26. ágúst 1977 og var þá sameignarfélag sveitarfélaga á Vestfjörðum og ríkisins. Fyrirtækið hóf formlega starfsemi þann 1. janúar 1978. Orkubú Vestfjarða ohf. var stofnað á grundvelli laga sem samþykkt voru á Alþingi 2001.
Frá árinu 2002 hefur Orkubú Vestfjarða ohf. verið að fullu í eigu ríkisins.
7 vatnsaflsvirkjanir
Fyrirtækið rekur 7 vatnsaflsvirkjanir, sem framleiða u.þ.b. 90.000 MWh á ári, sem er um 60% af orkunotkun Vestfjarða. Flutningskerfi Orkubúsins samanstendur af 1,036 km löngum rafmagnslínum og jarðstrengjum og er viðhaldið af starfsmönnum þess.
Gæðakerfi
Fyrirtækið starfrækir gæðastjórnunarkerfi sem samræmist kröfum í ISO 9001: 2015. Fyrirtækið var fyrsta rafveitan, sem fékk viðurkennt öryggisstjórnunarkerfi vottað af Mannvirkjastofnun árið 1999. Fyrirtækið rekur einnig innra eftirlitskerfi með sölumælum samkvæmt heimild frá Neytendastofu.
Starfsmenn og skrifstofur
Starfsmenn Orkubúsins eru um 70 talsins á þremur starfssvæðum og þjónusta þeir dreifikerfi fyrir Vestfirði og sölukerfi, sem nær til landsins alls. Aðalskrifstofa er á Ísafirði og svæðisskrifstofur á Hólmavík og Patreksfirði.
Stjórn Orkubúsins
Stjórn Orkubúsins er skipuð 5 mönnum, sem kjörnir eru á aðalfundi fyrirtækisins. Orkubússtjóri veitir fyrirtækinu forstöðu og er framkvæmdastjóri þess. Starfsemi Orkubúsins er skipt upp í orkusvið, veitusvið og fjármálasvið auk eftirlitsdeildar.

Orkubú Vestfjarða - Rafvirki
Rafvirki
Í boði er áhugavert starfsumhverfi með krefjandi
og fjölbreyttum verkefnum hjá traustu fyrirtæki.
Starfsmaðurinn verður hluti af vinnuflokki veitusviðs
Orkubús Vestfjarða með starfstöð á Patreksfirði.
Starfsumhverfi er sunnanverðir Vestfirðir.
Helstu verkefni og ábyrgð
Daglegur rekstur og nýframkvæmdir á veitusviði.
Viðhald á háspennu og lágspennubúnaði.
Reglubundið eftirlit í veitukerfi.
Bakvaktir.
Önnur tilfallandi verkefni.
Menntunar- og hæfniskröfur
Sveinspróf í rafvirkjun
Sjálfstæði í vinnubrögðum
Sjálfstæði í vinnubrögðum
Reynsla af sambærilegu starfi kostur
Sambærileg störf (12)

Sérfræðingur tæknimála á öryggissvæðinu á Keflavíkurflugvell...
Landhelgisgæsla Íslands
Tæknimaður/Technical Support Engineer
Skaginn 3X ehf. Akranes (+2) Fullt starf

Leiðtogi viðhaldsteymis í skautsmiðju
Alcoa Fjarðaál Reyðarfjörður 20. júní Fullt starf

Vélskömmtun lyfja
Lyfjaver Reykjavík Fullt starf

Rafmagnaður sölumaður
Vélar og verkfæri ehf. Reykjavík 18. júní Fullt starf

Snjall sölumaður
Vélar og verkfæri ehf. Reykjavík 18. júní Fullt starf

Tæknistarf á Austurlandi
Securitas Eskifjörður 6. júní Fullt starf

Lava Melter in Reykjavik
Lava Show Reykjavík 12. júní Fullt starf (+3)

Lava Melter in Vík
Lava Show Vík 12. júní Fullt starf (+3)

RAFVIRKI
Rafkló Reykjavík Fullt starf

Rafvirki Selfossi
RARIK ohf. Hvolsvöllur 12. júní Fullt starf

Rafvirki/Verkstjóri
AJraf ehf Kópavogur Fullt starf (+1)
Má bjóða þér smákökur? Alfreð notar vafrakökur til að greina umferð um vefinn og bæta upplifun þína. Sjá meira.