Hvammstangakirkja
Hvammstangakirkja
Hvammstangakirkja

Organistastaða laus við Hvammstangakirkju

Í Húnavatnsprestakalli er helgihald allt árið og þar eru þrír prestar starfandi. Sóknarprestur með starfsstöð á Hvammstanga, prestur með starfsstöð á Blönduósi og prestur með starfsstöð á Skagaströnd. Organisti við Hvammstangakirkju starfar með sóknarpresti á Hvammstanga vegna helgihalds í Húnaþingi vestra.

Organistastarfið felst annars vegar í kórstjórn; að undirbúa kóræfingar, þjálfa kirkjukór vikulega yfir vetratímann og stýra kirkjukór í helgihaldi og hins vegar orgelleikur við helgihald í kirkjum í Húnaþingi vestra, þó fyrst og fremst Hvammstangakirkju. Undirbúningur fyrir messur fer fram í samstarfi við sóknarprest, sem skipuleggur helgihald og safnaðarstarf, en ráðningarsamband er við sóknarnefnd Hvammstangakirkju.

Helstu verkefni og ábyrgð
  • Orgelleikur og kórstjórn á kóræfingum og við helgihald í Hvammstangakirkju, í öðrum kirkjum héraðsins og í kapellu HVE Hvammstanga.
  • Önnur tilfallandi verkefni sem rúmast innan starfskyldna og starfshlutfalls.
Menntunar- og hæfniskröfur
  • Kostur að umsækjandi hafi lokið prófi í kirkjutónlist frá Tónskóla þjóðkirkjunnar eða sambærilegu prófi í kirkjutónlist.
  • Umsækjandi hafi reynslu af tónlistarflutningi við helgihald og kórstjórn.
  • Umsækjandi hafi gaman af fjölbreyttu helgihaldi, sé hugmyndaríkur og vilji viðhalda og efla tónlistarstarf í söfnuðinum.
  • Umsækjandi hafi færni í samskiptum, getu til að vinna í hóp og hæfni til að starfa sjálfstætt. 
Auglýsing birt23. september 2026
Umsóknarfrestur22. október 2026
Laun (á mánuði)190 - 210 kr.
Tungumálahæfni
ÍslenskaÍslenska
Nauðsyn
Meðalhæfni
EnskaEnska
Nauðsyn
Meðalhæfni
Staðsetning
Hvammstangakirkja
Starfstegund
Hæfni
PathCreated with Sketch.Mannleg samskiptiPathCreated with Sketch.OrgelPathCreated with Sketch.Sjálfstæð vinnubrögðPathCreated with Sketch.Skipulag
Starfsgreinar
Starfsmerkingar