Steypustöðin
Steypustöðin
Steypustöðin

Öryggisstjóri

Steypustöðin leitar að sterkum, skipulögðum og sjálfstæðum einstakling til að leiða og þróa öryggismenningu innan fyrirtækisins.

Öryggisstjóri ber ábyrgð á því að tryggja að starfsemi okkar sé í samræmi við allar viðeigandi reglugerðir, staðla og stefnur og að öryggi starfsfólks sé alltaf í forgangi. Starfið heyrir beint undir forstjóra Steypustöðvarinnar.

Viðkomnandi ber einnig ábyrgð á að þróa og innleiða nýjar áætlanir með það að markmiði að skapa öruggan og skaðlausan vinnustað.

Ef þú hefur sterka öryggisvitund og mikla leiðtogahæfileika, þá gæti þetta mögulega verið rétta starfið fyrir þig.

Við hvetjum öll kyn og þjóðerni til að sækja um. Um framtíðarstarf er að ræða.

Helstu verkefni og ábyrgð
  • Umsjón með öryggismálum Steypustöðvarinnar
  • Utanumhald um slys og tjónamál, sjá til þess að koma upplýsingum á rétta staði.
  • Framfylgja lögum og reglugerðum varðandi ofangreinda málaflokka
  • Að halda utan um og bæta stöðugt áhættumat, áhættumeðhöndlun og öryggisstefnur
  • Samskipti við Vinnueftirlitið, tryggingafélög og aðra er að þessum málaflokkum koma
  • Að móta menningu fyrirtækisins með það markmið að auka öryggisvitund
  • Þróun og framkvæmd þjálfunar og fræðslu um öryggismál, í samvinnu við mannauðsdeild
  • Opin fyrir breytingum og starfsþróun
  • Önnur tilfallandi störf
Menntunar- og hæfniskröfur
  • Háskólamenntun sem nýtist í starfi nauðsynleg
  • Þekking á reglugerðarkröfum og bestu starfsvenjum iðnaðarins
  • Reynsla af því að leiða örygggismál nauðsynleg 
  • Framúrskarandi hæfni í framsetningu texta og greiningum
  • Framúrskarandi hæfni í mannlegum samskiptum
  • Hæfni til að þróa fræðsluáætlun vegna málaflokksins
Fríðindi í starfi
  • Námskeið og fræðsla
  • Líkamsræktarstyrkur
  • Jákvætt og hvetjandi vinnuumhverfi
  • Fjölbreytt og krefjandi verkefni
  • Hádegismatur
Auglýsing birt25. júní 2026
Umsóknarfrestur12. júlí 2026
Tungumálahæfni
EnskaEnska
Nauðsyn
Framúrskarandi
ÍslenskaÍslenska
Nauðsyn
Framúrskarandi
Staðsetning
Malarhöfði 10, 110 Reykjavík
Starfstegund
Starfsgreinar
Starfsmerkingar