
IKEA
Í dag starfa um 450 manns hjá IKEA á Íslandi, í lifandi alþjóðlegu umhverfi.
Þessi stóri samheldni hópur vinnur daglega að framgangi hugmyndafræði IKEA: „Að gera daglegt líf þægilegra fyrir sem flesta“.
Fjölbreytni er lykill að velgengni. Hjá IKEA, fögnum við öllum víddum fjölbreytileikans. Við leggjum áherslu á að skapa vinnuumhverfi þar sem öll eru velkomin, virt, studd og vel metin, sama hver þau eru eða hvaðan þau koma. Við erum fullviss um að sérstaða allra einstaklinga gerir IKEA betri.
Hér í IKEA leggjum við mikla áherslu á jákvæð samskipti á vinnustað og teljum sveigjanleika í starfi og samræmi milli vinnu og einkalífs vera mikilvægan þátt í starfsánægju.
Starfsemi fyrirtækisins býður upp á skapandi og skemmtileg störf og mikla möguleika á að þróast og vaxa í starfi – með jákvæðni að leiðarljósi.

Öryggisfulltrúi
Staða öryggisfulltrúa er laus til umsóknar. Um fullt starf er að ræða þar sem unnar eru dag- og næturvaktir á 5-5-4 vaktakerfi.
Starfið felst í almennri öryggisgæslu, rýrnunareftirliti og eftirliti með hússtjórnarkerfum. Að auki felst í starfinu móttaka gesta auk tilfallandi starfa sem heyra undir öryggisdeild.
Öryggisdeild IKEA er starfandi allan sólarhringinn, alla daga ársins og því geta vaktir lent á rauðum dögum.
Menntunar- og hæfniskröfur
Þekking á skyndihjálp
Almenn tölvukunnátta
Góðir samskiptahæfileikar
Góð þjónustulund
Sjálfstæð vinnubrögð
Heiðarleiki og áreiðanleiki
Stundvísi
Bílpróf
Reynsla af öryggisstörfum kostur
Vinnuvélaréttindi kostur
Góð íslenskukunnátta skilyrði
Helstu verkefni og ábyrgð
Öryggisgæsla (vöruvernd, rýrnunareftirlit)
Eftirlit með öryggi starfsmanna
Framfylgni á ákvæðum vinnuverndarlöggjafar
Eftirlit með öryggiskerfi hússins
Vinnsla á upplýsingum úr hússtjórnarkerfi
Skýrslugerð vegna slysa, atburða og uppákomna í húsinu og lóð þess
Veita fyrstu hjálp sé hennar þörf
Söltun og mokstur
Fríðindi í starfi
Ýmsir styrkir - m.a. heilsueflingarstyrkur, samgöngustyrkur og námsstyrkur
Niðurgreiddur heilsusamlegur matur og fríir ávextir
Afsláttur af IKEA vörum
Aðgengi að sumarbústað til einkanota
Frí heilsufarsskoðun og velferðarþjónusta frá utanaðkomandi fagaðila
Aðgengi að námskeiðum og fræðslu til að styrkja persónulega hæfni og framþróun
Auglýsing birt27. apríl 2022
Umsóknarfrestur23. maí 2022
Tungumálahæfni
Engar sérstakar tungumálakröfur
Staðsetning
Kauptún 4, 210 Garðabær
Starfstegund
Starfsgreinar
Starfsmerkingar

