Isavia Innanlandsflugvellir
Isavia Innanlandsflugvellir
Isavia Innanlandsflugvellir

Öryggis- og gæðastjóri Isavia Innanlandsflugvalla

Vilt þú taka virkan þátt í að tryggja öruggan og skilvirkan rekstur flugvalla um allt land?

Við leitum eftir metnaðarfullum og lausnamiðuðum einstaklingi til að leiða öryggis- og gæðamál hjá Isavia Innanlandsflugvöllum. Vinnubrögð verða að vera öguð og skipulögð, samskiptahæfileikar góðir og þekking á öryggis- og gæðamálum mikil.

Helstu verkefni

  • Umsjón og eftirfylgni á öryggis- og gæðakerfi og viðhalda verklagi

  • Umsjón með skilvirkni og frammistöðu stjórnunarkerfis og framþróun þess

  • Heldur utan um og kynnir öryggis- og gæðamælikvarða með reglulegum hætti

  • Framkvæmd áhættugreininga og eftirfylgni með mildunaraðgerðum

  • Umsjón með skráningu, úrvinnslu og greiningu atvika m.a. slysaatvika

  • Viðhald og eftirlit á öryggis- og gæðamælikvörðum og framsetning þeirra

  • Yfirsýn á þjálfunarmál flugvallarþjónustu

  • Leiða verkefni sem stuðla að umbótum og aukinni öryggisvitund

  • Samskipti við innlenda og erlenda aðila um öryggis- og starfsleyfismál

  • Stuðningur og ráðgjöf við stjórnendur og starfsfólk um öryggis- og gæðamál

  • Tengiliður við Isavia ohf. í öryggis- og gæðamálum

Hæfniskröfur

  • Háskólamenntun sem nýtist í starfi

  • Þekking og reynsla af innleiðingu og eftirfylgni öryggis- og gæðastjórnunarkerfa

  • Leiðtogahæfni og góð samskiptahæfni

  • Sjálfstæð og skipulögð vinnubrögð

  • Góð íslensku- og enskukunnátta

Ef þú brennur fyrir öryggis- og gæðamálum og vilt hafa áhrif á þróun flugvallareksturs á Íslandi, þá hvetjum við þig til að sækja um.

Isavia Innanlandsflugvellir reka þrjá alþjóðaflugvelli, níu áætlanaflugvelli og 35 lendingarstaði víða um land.

Starfsstöð: Reykjavíkurflugvöllur

Nánari upplýsingar um starfið veitir Sigrún Björk Jakobsdóttir framkvæmdastjóri, [email protected]

Auglýsing birt28. maí 2025
Umsóknarfrestur10. júní 2025
Tungumálahæfni
EnskaEnska
Nauðsyn
Mjög góð
ÍslenskaÍslenska
Nauðsyn
Mjög góð
Staðsetning
Reykjavíkurflugvöllur 1, 101 Reykjavík
Starfstegund
Hæfni
PathCreated with Sketch.Mannleg samskiptiPathCreated with Sketch.Sjálfstæð vinnubrögðPathCreated with Sketch.Umsýsla gæðakerfa
Starfsgreinar
Starfsmerkingar