Rannsóknasetur skapandi greina
Rannsóknasetur skapandi greina
Rannsóknasetur skapandi greina

Nemastarf við rannsóknarverkefni

Rannsóknasetur skapandi greina (RSSG) og Háskólinn á Bifröst leitar að háskólanema í sumarstarf við rannsóknarverkefni um gestatölur viðurkenndra safna á Íslandi. Verkefnið, Safnagestir, hlaut nýlega styrk úr Nýsköpunarsjóði námsmanna og tengist stærra rannsóknarverkefni, Söfn á Íslandi, sem RSSG leiðir og hlaut styrk frá Safnasjóði 2026. Söfn á Íslandi miðar að því að efla þekkingu, túlkun og miðlun gagna um starfsemi safna á Íslandi. Bæði verkefni er unnin í samstarfi Rannsóknasetursins og Háskólans á Bifröst. Fyrir hæfan einstakling gæti skapast tækifæri til þátttöku í stærra rannsóknarverkefninu.

Um verkefnið

Gestatölur eru mikilvægur mælikvarði fyrir starfsemi safna á Íslandi en takmörkuð þekking er til á því hvernig talning og flokkun gesta fer fram á milli safna. Verkefnið beinir sjónum að þessum spurningum með sérstakri áherslu á ferðamenn sem safnagesti. Markmið verkefnisins er að varpa ljósi á hvað felst í opinberum gestatölum viðurkenndra safna, hvaða samanburð þær leyfa og hvar takmarkanir liggja.

Verkefnið er bæði megindlegt og eigindlegt: Annars vegar verður unnið með gagnasafn Safnaráðs, þ.e. hreinsun og greiningu gagna, samanburð milli safna og yfir tíma. Hins vegar verður hönnuð og framkvæmd eigindleg gagnasöfnun, þ.e. spurningalistar og/eða stutt viðtöl við forsvarsfólk safna.

Afraksturinn verður þríþættur: Endurbætt gagnasett um safnagesti, rannsóknarskýrsla með helstu niðurstöðum, og grunnur að frekari rannsóknum.

Helstu verkefni og ábyrgð

Verkefnið er unnið í nánu samstarfi við umsjónarmenn og mun viðkomandi njóta leiðsagnar í öllum verkþáttum. Meginverkefni eru: 

  • Yfirferð og kortlagning á uppbyggingu og innihaldi gagnasafns Safnaráðs 

  • Hreinsun, samræming og megindleg greining gestatalna, þ.m.t. samanburður milli safna og yfir tíma 

  • Hönnun og framkvæmd eigindlegrar gagnasöfnunar hjá forsvarsfólki safna 

  • Samþætting megindlegrar og eigindlegrar greiningar 

  • Ritun rannsóknarskýrslu og frágangur endurbætts gagnasetts með lýsigögnum 

Menntunar- og hæfniskröfur
  • Nemandi sé skráður í háskólanám  (á grunn- eða meistarastigi)

  • Háskólagráða sem nýtist í starfi 

  • Skipulögð og sjálfstæð vinnubrögð 

  • Góð hæfni í íslensku í ræðu og riti  

  • Góð greiningarhæfni 

  • Reynsla og/eða þekking á eigindlegri aðferðafræði

  • Reynsla og/eða þekking á megindlegri aðferðafræði er kostur

  • Áhugi á menningarmálum og safnastarfi er kostur 

  • Kunnátta í R eða Python er kostur 

  • Áhugi á þátttöku í frekari rannsóknum á þessu sviði er kostur 

Auglýsing birt20. maí 2026
Umsóknarfrestur24. maí 2026
Tungumálahæfni
ÍslenskaÍslenska
Nauðsyn
Meðalhæfni
Staðsetning
Borgartún 18, 105 Reykjavík
Starfstegund
Hæfni
PathCreated with Sketch.GreiningarfærniPathCreated with Sketch.Sjálfstæð vinnubrögðPathCreated with Sketch.Skipulag
Hentugt fyrir
Starfsgreinar
Starfsmerkingar