

Nemar í læknis- og hjúkrunarfræðum - sumarstörf
Við leitum að nemum í bæði læknisfræði og hjúkrunarfræði til starfa í sumar. Starfshlutfall og vaktir eftir nánara samkomulagi. Við leitum eftir einstaklingum sem hafa jákvæðni og góð samskipti að leiðarljósi og eru tilbúnir til að taka þátt í að byggja upp sterkt teymi á góðum vinnustað.
Heilsuvernd Vífilsstöðum er skipuð sérhæfðu og metnaðarfullu starfsfólki sem leggur áherslu á faglega og framúrskarandi þjónustu. Á Vífilsstöðum er sem stendur veitt þjónusta til aldraðra sem bíða eftir varanlegri búsetu á hjúkrunarheimili en þjónustan verður þróuð áfram á komandi mánuðum og verður þá lögð áhersla á líknar- og bráðaþjónustu við aldraða.
Hjá Heilsuvernd leggjum við okkur fram um að skapa glaðlegt og gott vinnuumhverfi, auk þess sem við leggjum mikinn metnað í að veita framúrskarandi þjónustu.
- Almenn störf tengd fagsviði viðkomandi
- Skipulag og ábyrgð á að hjúkrun sé veitt í samræmi við sett markmið og gæðastefnu Heilsuverndar
- Eftirlit og mat á gæðum
- Krafa um að viðkomandi hafi lokið að lágmarki 2. ári í hjúkrunarfræði eða 3. ári í læknisfræði frá viðurkenndri menntastofnun
- Áhugi á öldrunarþjónustu og vinnu með öldruðum
- Starfsreynsla í öldrunarþjónustu er æskileg
- Frumkvæði, jákvæðni og samstarfsvilji
- Góð almenn tölvukunnátta
- Góð samskiptahæfni
- Þolinmæði og sveigjanleiki
- Umsækjandi þarf að geta talað og skrifað íslensku
Enska
Íslenska










