

Naustaskóli: Íþróttakennari
Í Naustaskóla er laus 100% staða íþróttakennara vegna fæðingarorlofs. Um tímabundna stöðu er að ræða. Ráðið er frá 1. febrúar 2026 eða eftir samkomulagi, til eins árs.
Í Naustaskóla er teymiskennsla og vinna íþróttakennarar saman í teymi.
Leitað er að einstaklingi með mikinn metnað, sem sýnt hefur árangur í störfum sínum og leggur áherslu á vellíðan og árangur nemenda í samstarfi við aðra starfsmenn og stjórnendur skólans.
Í Naustaskóla er lögð áhersla á jákvæðan aga, teymiskennslu, námsaðlögun og faglegt samstarf. Kennarar kenna saman á opnum svæðum og skapa saman lærdómssamfélag með sérstakri áherslu á að koma til móts við hvern og einn nemanda
Einkunnarorð Naustaskóla eru „Námsaðlögun- Athvarf- Umhyggja – Samvinna – Táp og fjör – Allir með!“
Viltu vita meira? Kíktu í rafræna heimsókn www.naustaskoli.is
Starfssvið:
Kennari er hluti af kennarateymi íþróttakennara, sinnir kennslu nemenda í samstarfi og samvinnu við kennarar teymisins og aðra starfsmenn skólans og ber ábyrgð á starfi sínu gagnvart skólastjóra.
- Hefur á valdi sínu fjölbreyttar kennsluaðferðir sem taka mið af mismunandi þörfum, áhuga og getu nemenda.
- Reynsla af teymiskennslu æskileg.
- Þekking og/eða vilji til að starfa eftir hugmyndafræði Jákvæðs aga.
- Góðir skipulagshæfileikar.
- Frumkvæði og samstarfsvilji.
- Sveigjanleiki og víðsýni í starfi og samskiptum.
- Hæfni í mannlegum samskiptum.
- Að vera reiðubúinn til að leita nýrra leiða í skólastarfi.
- Áhugi á þróunarstarfi.
- Gerð er krafa um vammleysi s.s. að vera með gott orðspor og að framkoma og athafnir á vinnustað og utan hans samrýmist starfinu.
Íslenska










