Stekkjaskóli
Stekkjaskóli
Stekkjaskóli

Náttúrufræðikennari

Auglýst er eftir náttúrufræðikennara í 100% starfshlutfall frá 1. ágúst 2025 á mið- og unglingastig. Leitað er eftir áhugasömum og framsæknum grunnskólakennara sem vill kenna náttúrufræði í skóla sem m.a. leggur áherslu á teymiskennslu, teymisvinnu, tækni og skapandi skólastarf. Á meðan skólinn er að stækka mun viðkomandi kennari kenna fleiri námsgreinar í samráði við skólastjórnendur.

Í Stekkjaskóla er glæný, glæsileg náttúrufræðistofa með stórum gróðurskála sem gefur ýmsa áhugaverða möguleika er varðar verklegt nám. Kennarinn mun taka þátt í því að skipuleggja og byggja upp námsumhverfið og náttúrufræðikennslu skólans. Frábært tækifæri fyrir grunnskólakennara sem hefur brennandi áhuga á náttúrufræði og umhverfismennt.

Í Sveitarfélaginu Árborg búa rúmlega 12.000 íbúar og starfa um 1000 manns hjá sveitarfélaginu. Lögð er áhersla á að skapa starfsumhverfi sem stuðlar að vellíðan og árangri þar sem starfað er af fagmennsku og góðum ásetningi með hag sveitarfélagsins að leiðarljósi.

Helstu verkefni og ábyrgð
  • Annast kennslu samkvæmt megin markmiðum Aðalnámskrá grunnskóla með hliðsjón af þörfum og þroska nemenda
  • Fylgist með velferð nemenda, hlúir að þeim andlega og líkamlega í samræmi við eðli og þarfir hvers og eins svo að þeir fái notið sín sem einstaklingar
  • Heldur utan um nám- og kennslu í náttúrufræði og umhverfismennt
  • Tekur þátt í skólaþróun í samræmi við stefnu skólans og sveitarfélagsins
Menntunar- og hæfniskröfur
  • Leyfisbréf grunnskólakennara
  • Reynsla af náttúrufræðikennslu er kostur
  • Góð þekking á náttúrufræði og umhverfismennt mikilvæg
  • Frumkvæði, skipulagshæfileikar og sjálfstæð vinnubrögð 
  • Góð færni í mannlegum samskiptum  
  • Hæfni til að tjá sig í ræðu og riti á íslensku
  • Áhugi á skólaþróun og skapandi kennsluháttum mikilvægur
Auglýsing birt18. mars 2025
Umsóknarfrestur31. mars 2025
Tungumálahæfni
ÍslenskaÍslenska
Nauðsyn
Framúrskarandi
Staðsetning
Heiðarstekkur 10
Starfstegund
Hæfni
PathCreated with Sketch.FrumkvæðiPathCreated with Sketch.Mannleg samskiptiPathCreated with Sketch.Sjálfstæð vinnubrögðPathCreated with Sketch.Skipulag
Starfsgreinar
Starfsmerkingar